Tilkynningar

Opinn fundur í stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd föstudaginn 2. desember

30.11.2022

Stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd Alþingis heldur opinn fund föstudaginn 2. desember í húsnæði nefndasviðs Alþingis í Austurstræti 8-10. Fundurinn hefst kl. 10:30 og stendur til 12:00. Fundarefnið er skýrsla Ríkisendurskoðunar um sölu á hlut ríkisins í Íslandsbanka.

Gestir fundarins verða Jón Gunnar Jónsson, forstjóri Bankasýslu ríkisins, Lárus L. Blöndal, stjórnarformaður Bankasýslu ríkisins, Óttar Pálsson, lögmaður hjá Logos, og Maren Albertsdóttir, lögmaður hjá Logos.

Fundurinn verður opinn fulltrúum fjölmiðla og almenningi meðan húsrúm leyfir.

Bein útsending verður frá fundinum á vef Alþingis og á sjónvarpsrás Alþingis.

Að loknum fundi má nálgast upptöku af fundinum hér.

Fundurinn verður haldinn samkvæmt X. kafla reglna um starfsreglur fastanefnda Alþingis.