Tilkynningar

Opinn fundur efnahags- og viðskiptanefndar fimmtudaginn 3. mars um skýrslu peningastefnunefndar Seðlabankans

1.3.2022

Efnahags- og viðskiptanefnd heldur opinn fund fimmtudaginn 3. mars í húsnæði nefndasviðs Alþingis í  Austurstræti 8–10 og hefst hann kl. 9:10. Fundarefni er skýrsla peningastefnunefndar Seðlabanka Íslands fyrir síðari hluta árs 2021. Gestur fundarins verður Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri og ásamt honum mætir Rannveig Sigurðardóttir, varaseðlabankastjóri peningastefnu.

Fundurinn verður opinn fulltrúum fjölmiðla og almenningi meðan húsrúm leyfir.

Bein útsending verður frá fundinum á vef Alþingis og á sjónvarpsrás Alþingis.

Að loknum fundi má nálgast upptöku af fundinum hér.

Fundurinn verður haldinn samkvæmt X. kafla reglna um starfsreglur fastanefnda Alþingis.