Tilkynningar

Opinn fundur efnahags- og viðskiptanefndar þriðjudaginn 29. mars um skýrslu fjármálastöðugleikanefndar Seðlabanka Íslands fyrir árið 2021

25.3.2022

Efnahags- og viðskiptanefnd Alþingis heldur opinn fund þriðjudaginn 29. mars kl. 9:10 í húsnæði nefndasviðs Alþingis í Austurstræti 8–10. Fundarefni er skýrsla fjármálastöðugleikanefndar Seðlabanka Íslands fyrir árið 2021. Gestir fundarins verða Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri og Gunnar Jakobsson,  varaseðlabankastjóri fjármálastöðugleika.

Fundurinn verður opinn fulltrúum fjölmiðla og almenningi meðan húsrúm leyfir.

Bein útsending verður frá fundinum á vef Alþingis og á sjónvarpsrás Alþingis.

Að loknum fundi má nálgast upptöku af fundinum hér. 

Fundurinn verður haldinn samkvæmt X. kafla reglna um starfsreglur fastanefnda Alþingis.