Tilkynningar

Opinn fundur efnahags- og viðskiptanefndar um FATF og stöðu Íslands

21.10.2019

Efnahags- og viðskiptanefnd heldur opinn fund þriðjudaginn 22. október kl. 9–10. Efni fundarins er FATF og staða Íslands. Gestir fundarins verða Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir dómsmálaráðherra og Bjarni Benediktsson fjármála- og efnahagsráðherra.

Fundurinn verður haldinn í húsnæði nefndasviðs Alþingis í Austurstræti 8–10 og verður opinn fulltrúum fjölmiðla og almenningi meðan húsrúm leyfir.

Bein útsending verður frá fundinum á vef Alþingis og á sjónvarpsrás Alþingis á dreifikerfum Símans og Vodafone.

Að loknum fundi má nálgast upptöku af fundinum hér.

Fundurinn verður haldinn samkvæmt reglum um opna fundi fastanefnda Alþingis.

Efnahags- og viðskiptanefnd í mars 2018