Tilkynningar

Opinn fundur í allsherjar- og menntamálanefnd þriðjudaginn 17. maí um fræðslu og menntun lögreglumanna

16.5.2022

Allsherjar- og menntamálanefnd Alþingis heldur opinn fund þriðjudaginn 17. maí í húsnæðis nefndasviðs Alþingis í Austurstræti 8-10 og hefst hann kl. 9:10. Fundarefnið er fræðsla og menntun lögreglumanna um fjölmenningu og fordóma. Gestir fundarins verða Sigríður Björk Guðjónsdóttir ríkislögreglustjóri og Ólafur Örn Bragason, forstöðumaður mennta- og starfsþróunarseturs lögreglunnar.

Fundurinn verður opinn fulltrúum fjölmiðla og almenningi meðan húsrúm leyfir. Bein útsending verður frá fundinum á vef Alþingis og á sjónvarpsrás Alþingis.

Að loknum fundi má nálgast upptöku af fundinum hér.

Fundurinn verður haldinn samkvæmt X. kafla reglna um starfsreglur fastanefnda Alþingis.