Tilkynningar

Opinn fundur í atvinnuveganefnd fimmtudaginn 4. apríl

3.4.2019

Opinn fundur verður haldinn í atvinnuveganefnd fimmtudaginn 4. apríl kl. 9:00. Umfjöllunarefni fundarins er staða íslensku ferðaþjónustunnar eftir fall WOW air.

Fundurinn verður haldinn í húsnæði nefndasviðs Alþingis í Austurstræti 8–10 og verður opinn fulltrúum fjölmiðla og almenningi meðan húsrúm leyfir. Gestir fundarins verða ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra og fulltrúar frá Samtökum ferðaþjónustunnar.

Bein útsending verður frá fundinum á vef Alþingis og á sjónvarpsrás Alþingis á dreifikerfum Símans og Vodafone. Að loknum fundi má nálgast upptöku af fundinum hér.

Fundurinn verður haldinn samkvæmt reglum um opna fundi fastanefnda Alþingis.