Tilkynningar

Opinn fundur í efnahags- og viðskiptanefnd 26. október

23.10.2023

Efnahags- og viðskiptanefnd Alþingis heldur opinn fund fimmtudaginn 26. október með Seðlabanka Íslands til að fjalla um skýrslu peningastefnunefndar Seðlabanka Íslands.

Fundurinn hefst kl. 8:30 í húsnæði nefnda- og greiningarsviðs Alþingis í Austurstræti 8–10.

Fundarefnið er skýrsla peningastefnunefndar Seðlabanka Íslands til Alþingis fyrir fyrri hluta ársins 2023 og munu Ásgeir Jónsson, seðlabankastjóri, og Rannveig Sigurðardóttir, varaseðlabankastjóri peningastefnu, koma á fundinn.

Fundurinn verður opinn fulltrúum fjölmiðla og almenningi meðan húsrúm leyfir.

Bein útsending verður frá fundinum á vef Alþingis og á sjónvarpsrás Alþingis.

Fundurinn verður haldinn samkvæmt X. kafla reglna um starfsreglur fastanefnda Alþingis.