Tilkynningar

Opinn fundur í efnahags- og viðskiptanefnd fimmtudaginn 11. apríl

8.4.2024

Efnahags- og viðskiptanefnd Alþingis heldur opinn fund fimmtudaginn 11. apríl í húsnæði nefnda- og greiningarsviðs Alþingis í Smiðju og hefst hann kl. 8:30.

Fundarefnið er skýrsla fjármálastöðugleikanefndar til Alþingis fyrir árið 2023.

Gestir fundarins verða Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri og Gunnar Jakobsson, varaseðlabankastjóri fjármálastöðugleika.

Fundurinn verður opinn fulltrúum fjölmiðla og almenningi meðan húsrúm leyfir.

Bein útsending verður frá fundinum á vef Alþingis og á sjónvarpsrás Alþingis.

Fundurinn verður haldinn samkvæmt X. kafla reglna um starfsreglur fastanefnda Alþingis