Tilkynningar

Opinn fundur í efnahags- og viðskiptanefnd föstudaginn 28. apríl

27.4.2023

Efnahags- og viðskiptanefnd Alþingis heldur opinn fund föstudaginn 28. apríl í húsnæði nefnda- og greiningarsviðs Alþingis í Austurstræti 8–10 og hefst hann kl. 9:15. Fundarefnið er skýrsla peningastefnunefndar Seðlabanka Íslands. 

Gestir fundarins verða Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri og Rannveig Sigurðardóttir, varaseðlabankastjóri peningastefnu.

Fundurinn verður opinn fulltrúum fjölmiðla og almenningi meðan húsrúm leyfir.

Bein útsending verður frá fundinum á vef Alþingis og á sjónvarpsrás Alþingis.

Fundurinn verður haldinn samkvæmt X. kafla reglna um starfsreglur fastanefnda Alþingis.