Tilkynningar

Opinn fundur í efnahags- og viðskiptanefnd þriðjudaginn 13. febrúar

8.2.2024

Efnahags- og viðskiptanefnd Alþingis heldur opinn fund þriðjudaginn 13. febrúar í Smiðju, Tjarnargötu 9, og hefst hann kl. 9:10.

Fundarefnið er skýrsla peningastefnunefndar Seðlabanka Íslands fyrir seinni hluta ársins 2023.

Gestir fundarins verða Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri og Rannveig Sigurðardóttir, varaseðlabankastjóri peningastefnu.

Fundurinn verður opinn fulltrúum fjölmiðla og almenningi meðan húsrúm leyfir.

Bein útsending verður frá fundinum á vef Alþingis og á sjónvarpsrás Alþingis.

Fundurinn verður haldinn samkvæmt X. kafla reglna um starfsreglur fastanefnda Alþingis