Tilkynningar

Opinn fundur í efnahags- og viðskiptanefnd þriðjudaginn 21. febrúar

20.2.2023

Efnahags- og viðskiptanefnd Alþingis heldur opinn fund þriðjudaginn 21. febrúar í húsnæði nefnda- og greiningarsviðs Alþingis í Austurstræti 8–10 og hefst hann kl. 9:10.

Fundarefnið eru áhrif verðbólgu á hagkerfið og heimilin í landinu. Gestir fundarins verða Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri og Rannveig Sigurðardóttir, varaseðlabankastjóri peningastefnu.

Fundurinn verður opinn fulltrúum fjölmiðla og almenningi meðan húsrúm leyfir.
Bein útsending verður frá fundinum á vef Alþingis og á sjónvarpsrás Alþingis.

Að loknum fundi má nálgast upptöku af fundinum hér.

Fundurinn verður haldinn samkvæmt X. kafla reglna um starfsreglur fastanefnda Alþingis.