Opinn fundur í velferðarnefnd mánudaginn 16. október
Velferðarnefnd Alþingis heldur opinn fund mánudaginn 16. október í húsnæði nefnda- og greiningarsviðs Alþingis í Austurstræti 8-10 og hefst hann kl. 9:30.
Fundarefnið er réttindi útlendinga sem sviptir hafa verið þjónustu í kjölfar lokasynjunar á umsókn þeirra um alþjóðlega vernd.
Eftirfarandi koma á fund nefndarinnar:
- Kl. 9:30 Guðmundur Ingi Guðbrandsson, félags- og vinnumarkaðsráðherra.
- Kl. 10:00 Samband íslenskra sveitarfélaga, Rauði krossinn og Solaris – hjálparsamtök fyrir hælisleitendur og flóttafólk.
Fundurinn verður opinn fulltrúum fjölmiðla og almenningi meðan húsrúm leyfir.
Bein útsending verður frá fundinum á vef Alþingis og á sjónvarpsrás Alþingis.
Fundurinn verður haldinn samkvæmt X. kafla reglna um starfsreglur fastanefnda Alþingis.