Tilkynningar

Fundi frestað: Opinn fundur stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar

12.8.2021

ATH. Fundinum hefur verið frestað.

Stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd Alþingis heldur opinn fjarfund fimmtudaginn 19. ágúst kl. 10:00. Tilefnið er umfjöllun nefndarinnar um verklag nefndar um eftirlit með lögreglu. Gestir fundarins verða Stefán Örn Arnarsson frá Landssambandi lögreglumanna, Helgi Valberg Jensson frá Ríkislögreglustjóra og Helga Þórisdóttir og Helga Sigríður Þórhallsdóttir frá Persónuvernd.

Vegna takmarkana á fundahaldi fastanefnda er ekki unnt að hafa fundinn opinn með hefðbundnum hætti eða taka á móti fjölmiðlum á nefndasviði Alþingis. Því verður fundinum streymt á vef þingsins og sjónvarpsrás þess.

Að loknum fundi má nálgast upptöku af fundinum hér.