Tilkynningar

Opinn fundur stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar um frumkvæðisathugun á hæfi sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra

20.1.2020

Stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd heldur opinn fund miðvikudaginn 22. janúar kl. 09:00. Efni fundarins er frumkvæðisathugun á hæfi sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra í ljósi stöðu hans gagnvart útgerðarfyrirtækinu Samherja.

Gestur fundarins verður Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.

Fundurinn verður haldinn í húsnæði nefndasviðs Alþingis í Austurstræti 8–10 og verður opinn fulltrúum fjölmiðla og almenningi meðan húsrúm leyfir.
Bein útsending verður frá fundinum á vef Alþingis og á sjónvarpsrás Alþingis á dreifikerfum Símans og Vodafone.

Að loknum fundi má nálgast upptöku af fundinum hér.

Fundurinn verður haldinn samkvæmt reglum um opna fundi fastanefnda Alþingis.

Opinn fundur í stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd