Tilkynningar

Opinn fundur um skýrslu umboðsmanns Alþingis – bein útsending

21.9.2015

Opinn fundur verður í stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd Alþingis þriðjudaginn 22. september klukkan 10:00. Til umfjöllunar á fundinum verður skýrsla umboðsmanns Alþingis fyrir árið 2014.

Gestir á fundinum verða umboðsmaður Alþingis, Tryggvi Gunnarsson og Hafsteinn Dan Kristjánsson og Maren Albertsdóttir, starfsmenn umboðsmanns Alþingis.

Fundurinn verður haldinn í húsnæði nefndasviðs Alþingis í Austurstræti 8-10 og verður opinn fulltrúum fjölmiðla og almenningi meðan húsrúm leyfir.

Bein útsending verður frá fundinum í ríkissjónvarpinu og á vef Alþingis og sjónvarpsrás Alþingis á dreifikerfum Símans og Vodafone og í ríkissjónvarpinu.

Fundurinn verður haldinn samkvæmt reglum um opna fundi fastanefnda Alþingis.