Tilkynningar

Opinn fundur undirbúningsnefndar fyrir rannsókn kjörbréfa mánudaginn 11. október

8.10.2021

Undirbúningsnefnd fyrir rannsókn kjörbréfa heldur opinn fund mánudaginn 11. október kl. 10:30. Fundarefnið er undirbúningur fyrir rannsókn kjörbréfa og gestur fundarins verður Hafsteinn Þór Hauksson, dósent við lagadeild Háskóla Íslands.

Fundurinn verður haldinn í húsnæði nefndasviðs Alþingis í Austurstræti 8–10 og verður opinn fulltrúum fjölmiðla og almenningi meðan húsrúm leyfir.

Bein útsending verður frá fundinum á vef Alþingis og á sjónvarpsrás Alþingis á dreifikerfum Símans og Vodafone.

Að loknum fundi má nálgast upptöku af fundinum hér.

Um opna fundi fer skv. 19. gr. laga um þingsköp Alþingis, nr. 55/1991, og X. kafla starfsreglna fastanefnda.