Tilkynningar

Sumarfundur forsætisnefndar á Austurlandi

1.9.2023

Forsætisnefnd Alþingis hélt sinn árlega sumarfund á Hótel Hallormsstað 31. ágúst – 1. september. Dagskrá fundarins var þétt og komandi þingvetur undirbúinn. Rædd voru fjölmörg mál er varða starfsemi og rekstur þingsins og stofnana þess. Ríkisendurskoðandi og umboðsmaður Alþingis sátu þann hluta fundarins þar sem fjallað var um málefni þeirra stofnana.

Sumarfundir forsætisnefndar eru haldnir í kjördæmum landsins til skiptis áður en nýtt löggjafarþing kemur saman og nú var röðin komin að Austurlandi.

Sumarfundur-forsaetisnefndar-2023-Skriduklaustri_1

Forsætisnefnd Alþingis og áheyrnarfulltrúar, ásamt starfsfólki skrifstofu Alþingis, umboðsmanni og ríkisendurskoðanda: Skúli Magnússon, Auður Elva Jónsdóttir, Andrés Ingi Jónsson, Diljá Mist Einarsdóttir, Líneik Anna Sævarsdóttir, Birgir Ármannsson, Jódís Skúladóttir, Ásthildur Lóa Þórsdóttir, Oddný G. Harðardóttir, Laufey Helga Guðmundsdóttir, Guðmundur Björgvin Helgason, Ragna Árnadóttir og Þórhallur Vilhjálmsson.