Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 75. máls.
143. löggjafarþing 2013–2014.
Prentað upp.

Þingskjal 257  —  75. mál.

Síðari umræða.


Nefndarálit


um tillögu til þingsályktunar um staðfestingu ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 45/2013 um breytingu á XX. viðauka (Umhverfismál) við EES-samninginn.

Frá utanríkismálanefnd.


    Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund Bryndísi Kjartansdóttur og Önnu Katrínu Vilhjálmsdóttur frá utanríkisráðuneyti og Glóeyju Finnsdóttur frá umhverfis- og auðlindaráðuneyti.
    Utanríkismálanefnd hefur tvívegis áður, í samræmi við reglur um þinglega meðferð EES- mála, fjallað um tilskipun 2009/126/EB er varðar eldsneytisgufugleypa á bensíndælur. Fyrra skiptið var, sbr. 2. gr. reglnanna, til mats á því hvort efnislegra aðlagana sé þörf. Málið var þá komið til umfjöllunar í vinnuhópi EFTA um umhverfismál og var utanríkismálanefnd upplýst um málið skv. 2. mgr. 24. gr. laga um þingsköp Alþingis, nr. 55/1991, sbr. 2. og 7. gr. framangreindra reglna, með skeyti frá utanríkisráðuneyti, dags. 24. apríl 2012, ásamt fylgigögnum. Í því ferli hlaut tilskipunin efnislega umfjöllun í umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis.
    Síðara skiptið var, sbr. 3. gr. framangreindra reglna, þegar nefndin óskaði eftir á fundi sínum 24. janúar 2013 að utanríkisráðuneytið beitti sér fyrir því að upptöku tilskipunar 2009/126/EB í EES-samninginn yrði frestað, með því að viðkomandi mál yrði tekið út af dagskrá sameiginlegu EES-nefndarinnar fyrir fund 1. febrúar 2013, á meðan tilgreindar upplýsingar yrðu teknar saman og utanríkismálanefnd Alþingis fjallaði nánar um málið. Var það gert. Við umfjöllun nefndarinnar óskaði nefndin eftir upplýsingum um kostnaðarhlið málsins og var meðal annars vísað til byggðasjónarmiða í því sambandi. Barst minnisblað utanríkisráðuneytis og umhverfis- og auðlindaráðuneytis um samráð við hagsmunaaðila og kostnað vegna eldsneytisgufugleypa á bensíndælur þann 5. mars 2013. Að lokinni umfjöllun nefndarinnar var málið tekið upp á fundi sameiginlegu EES-nefndarinnar 15. mars 2013 og samþykkt inn í EES-samninginn með fyrirvara um samþykki Alþingis skv. 21. gr. stjórnarskrárinnar. Í samræmi við það er málið nú þriðja sinni komið til umfjöllunar nefndarinnar.
    Með tillögunni er nú leitað heimildar Alþingis til að staðfesta ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 45/2013, frá 15. mars 2013, um breytingu á XX. viðauka (Umhverfismál) við EES-samninginn frá 2. maí 1992, og fella inn í samninginn tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2009/126/EB, frá 21. október 2009, um II. áfanga endurheimtar bensíngufu við eldsneytistöku fyrir vélknúin ökutæki á bensínstöðvum. Sex mánaða frestur, samkvæmt EES-samningnum, til að aflétta stjórnskipulegum fyrirvara var veittur til 15. september 2013. Framsetning tillögunnar telst að mati nefndarinnar í samræmi við 4. gr. reglna um þinglega meðferð EES-mála frá 1. október 2010.
    Tilskipunin kveður á um skyldu til uppsetningar gufugleypa á bensíndælur í því skyni að draga úr loftmengun, og þar með bæta loftgæði og vernda heilsu fólks. Í athugasemdum við tillöguna kemur fram að slíka gufugleypa skuli setja upp á nýjar bensínstöðvar og bensínstöðvar sem undirgangast meiri háttar endurnýjun þar sem árleg bensínsala er meiri en 500 þúsund lítrar, eða í þeim tilvikum þegar bensínstöð er staðsett undir íbúðarhúsnæði eða vinnusvæði, en í slíkum tilvikum er viðmiðið meira en 100 þúsund lítrar á ári. Þá skuli setja upp gufugleypa á allar bensínstöðvar þar sem árleg bensínsala nemur meira en 3 milljónum lítra á ári. Í síðastnefnda tilvikinu skuli búnaðurinn vera settur upp fyrir 31. desember 2018. Í tilskipuninni er jafnframt kveðið á um þær lágmarkskröfur sem gufugleyparnir þurfa að uppfylla, sem og reglulegt eftirlit með búnaðinum.
    Við umfjöllun nefndarinnar kom fram að skylda til uppsetningar gufugleypa verður frekar takmörkuð hérlendis, þar sem árleg sala bensíns á stórum hluta bensínstöðva hérlendis nær ekki 500 þúsund lítrum á ári. Fjórar bensínstöðvar selja meira en 3 milljónir lítra af bensíni á ári og þær hafa þegar sett upp nauðsynlegan búnað eða eru rétt í þann mund að ljúka uppsetningu. Á 103 bensínstöðvum verður einungis skylt að setja upp gufugleypa ef þær undirgangast meiri háttar endurnýjun eða nýjar stöðvar verða byggðar. Þá sé ein bensínstöð á Íslandi undir íbúðarhúsnæði og er talið ólíklegt að fleiri slíkar stöðvar verði reistar.
    Innleiðing framangreindrar gerðar kallar á lagabreytingar hér á landi og mun umhverfis- og auðlindaráðherra í því skyni leggja fram frumvarp til laga um breytingu á efnalögum, nr. 61/2013, til innleiðingar á ákvæðum tilskipunarinnar. Frumvarpið mun að líkindum koma til umfjöllunar í umhverfis- og samgöngunefnd.
    Ekki er gert ráð fyrir að innleiðing tilskipunarinnar muni hafa í för með sér stjórnsýslulegar og efnahagslegar afleiðingar.
    Nefndin leggur til að tillagan verði samþykkt.
    Birgitta Jónsdóttir, áheyrnarfulltrúi í utanríkismálanefnd, er samþykk áliti þessu.

Alþingi, 22. nóvember 2013.



Birgir Ármannsson,


form.


Össur Skarphéðinsson,


frsm.


Ásmundur Einar Daðason.



Óttarr Proppé.


Árni Þór Sigurðsson.


Silja Dögg Gunnarsdóttir.



Vilhjálmur Bjarnason.