Ferill 656. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


149. löggjafarþing 2018–2019.
Þingskjal 1305  —  656. mál.
Síðari umræða.



Nefndarálit


um tillögu til þingsályktunar um staðfestingu ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 20/2018 um breytingu á IX. viðauka (Fjármálaþjónusta) við EES-samninginn.

Frá utanríkismálanefnd.


    Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund Pétur Gunnarsson frá utanríkisráðuneyti og Ernu Hjaltested, Gunnlaug Helgason og Mörtu Margréti Rúnarsdóttur frá fjármála- og efnahagsráðuneyti.
    Með tillögunni er leitað heimildar Alþingis til að staðfesta ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 20/2018 frá 9. febrúar 2018 um breytingu á IX. viðauka (Fjármálaþjónusta) við EES-samninginn frá 2. maí 1992 og að fella inn í samninginn eftirtaldar gerðir:
     1.      Tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2013/14/ESB frá 21. maí 2013 um breytingu á tilskipun 2003/41/EB um starfsemi og eftirlit með stofnunum sem sjá um starfstengdan lífeyri, tilskipun 2009/65/EB um samræmingu á lögum og stjórnsýslufyrirmælum um verðbréfasjóði (UCITS) og tilskipun 2011/61/ESB um rekstraraðila sérhæfðra sjóða að því er varðar oftraust á lánshæfismöt.
     2.      Tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2014/91/ESB frá 23. júlí 2014 um breytingu á tilskipun 2009/65/EB um samræmingu á lögum og stjórnsýslufyrirmælum um verðbréfasjóði (UCITS) að því er varðar störf vörsluaðila, starfskjarastefnu og viðurlög.
    Sex mánaða frestur samkvæmt EES-samningnum til að aflétta stjórnskipulegum fyrirvara var veittur til 10. ágúst 2019. Framsetning tillögunnar telst að mati nefndarinnar í samræmi við 7. gr. reglna um þinglega meðferð EES-mála.
    Með tilskipun 2013/14/ESB eru gerðar breytingar á þremur tilskipunum á sviði sjóða, þ.e. tilskipun 2003/41, um starfstengda eftirlaunasjóði, tilskipun 2009/65, um verðbréfasjóði (sem nefnd er UCITS IV), og tilskipun 2011/61, um rekstraraðila sérhæfðra sjóða. Í tilskipuninni er kveðið á um að lífeyrissjóðir, verðbréfasjóðir og fagfjárfestasjóðir skuli ekki notast eingöngu við lánshæfismatseinkunn þriðja aðila þegar áhætta við mat á fjárfestingu er metin. Markmiðið er að auka gæði fjárfestinga nefndra sjóða og auka fjárfestavernd. Gerðin hefur engin áhrif á íslenska lífeyrissjóði.
    Með tilskipun 2014/91/ESB (UCITS V) eru gerðar breytingar á tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins nr. 2009/65/EB um samræmingu á lögum og stjórnsýslufyrirmælum að því er varðar verðbréfasjóði (UCITS IV). Tilskipuninni er ætlað að bæta upp þá veikleika sem hafa komið í ljós í UCITS IV-regluverkinu og sem leitt hafa til eignataps fyrir fjárfesta. Þá er leitast við að auka öryggi fjárfesta með ákvæðum um skýrara hlutverk vörsluaðila, nýjum reglum sem fela í sér að rekstrarfélögum beri að setja sér sérstaka starfskjarastefnu fyrir starfsmenn og aðra aðila sem taka ákvarðanir sem hafa áhrif á áhættutöku verðbréfasjóða og rekstrarfélaga og með ákvæðum um samræmingu á lágmarksvaldheimildum eftirlitsaðila.
    Innleiðing tilskipananna kallar á lagabreytingar og er gert ráð fyrir að fjármála- og efnahagsráðherra leggi á haustþingi 2019 fram frumvarp til breytinga á lögum nr. 128/2011, um verðbréfasjóði, fjárfestingarsjóði og fagfjárfestasjóði, auk afleiddra breytinga.
    Nefndin leggur til að tillagan verði samþykkt.

Alþingi, 3. apríl 2019.

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir,
form.
Logi Einarsson,
frsm.
Ari Trausti Guðmundsson.
Bryndís Haraldsdóttir. Gunnar Bragi Sveinsson. Rósa Björk Brynjólfsdóttir.
Silja Dögg Gunnarsdóttir. Smári McCarthy. Þorgerður K. Gunnarsdóttir.