Ferill 187. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
150. löggjafarþing 2019–2020.
Þingskjal 478 — 187. mál.
Síðari umræða.
Nefndarálit
um tillögu til þingsályktunar um staðfestingu ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 78/2019 um breytingu á IX. viðauka (Fjármálaþjónusta) við EES-samninginn.
Frá utanríkismálanefnd.
Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund Gaut Sturluson frá utanríkisráðuneyti og Guðmund Kára Kárason frá fjármála- og efnahagsráðuneyti.
Með tillögunni er leitað heimildar Alþingis til að staðfesta ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 78/2019 frá 29. mars 2019 um breytingu á IX. viðauka (Fjármálaþjónusta) við EES-samninginn frá 2. maí 1992 og að fella inn í samninginn eftirfarandi fjórar gerðir:
1. Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 600/2014 frá 15. maí 2014 um markaði fyrir fjármálagerninga og um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 648/2012.
2. Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2016/1033 frá 23. júní 2016 um breytingu á reglugerð nr. 600/2014 um markaði fyrir fjármálagerninga, reglugerð (ESB) nr. 596/2014 um markaðssvik og reglugerð (ESB) nr. 909/2014 um bætt verðbréfauppgjör í Evrópusambandinu og verðbréfamiðstöðvar.
3. Tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2014/65/ESB frá 15. maí 2014 um markaði fyrir fjármálagerninga og um breytingu á tilskipun 2002/92/EB og tilskipun 2011/61/ESB.
4. Tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2016/1034 frá 23. júní 2016 um breytingu á tilskipun 2014/65/ESB um markaði fyrir fjármálagerninga.
Framsetning tillögunnar telst að mati nefndarinnar í samræmi við 7. gr. reglna um þinglega meðferð EES-mála.
Nefndin leggur til að tillagan verði samþykkt.
Logi Einarsson, Rósa Björk Brynjólfsdóttir og Þorgerður K. Gunnarsdóttir voru fjarverandi við afgreiðslu málsins.
Alþingi, 13. nóvember 2019.
Sigríður Á. Andersen, form. |
Bryndís Haraldsdóttir, frsm. |
Ari Trausti Guðmundsson. |
Gunnar Bragi Sveinsson. | Silja Dögg Gunnarsdóttir. | Smári McCarthy. |