Ferill 189. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
150. löggjafarþing 2019–2020.
Þingskjal 480 — 189. mál.
Síðari umræða.
Nefndarálit
um tillögu til þingsályktunar um staðfestingu ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 79/2019 um breytingu á IX. viðauka (Fjármálaþjónusta) við EES-samninginn.
Frá utanríkismálanefnd.
Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund Gaut Sturluson frá utanríkisráðuneyti og Guðmund Kára Kárason frá fjármála- og efnahagsráðuneyti.
Með tillögunni er leitað heimildar Alþingis til að staðfesta ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 79/2019 frá 29. mars 2019 um breytingu á IX. viðauka (Fjármálaþjónusta) við EES-samninginn frá 2. maí 1992 og að fella inn í samninginn eftirfarandi þrjár gerðir:
1. Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 575/2013 frá 26. júní 2013 um varfærniskröfur að því er varðar lánastofnanir og verðbréfafyrirtæki og um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 648/2012.
2. Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2017/2395 frá 12. desember 2017 um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 575/2013 að því er varðar umbreytingarfyrirkomulag til að draga úr áhrifum á eiginfjárgrunn vegna innleiðingar IFRS-staðals 9 og fyrir meðhöndlun tiltekinna áhættuskuldbindinga opinberra aðila gefnum upp í heimagjaldmiðli aðildarríkis sem stórra áhættuskuldbindinga.
3. Tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2013/36/ESB frá 26. júní 2013 um aðgang að starfsemi lánastofnana og varfærniseftirlit með lánastofnunum og fjárfestingarfyrirtækjum, um breytingu á tilskipun 2002/87/EB og um niðurfellingu á tilskipunum 2006/48/EB og 2006/49/EB.
Framsetning tillögunnar telst að mati nefndarinnar í samræmi við 7. gr. reglna um þinglega meðferð EES-mála.
Nefndin leggur til að tillagan verði samþykkt.
Logi Einarsson, Rósa Björk Brynjólfsdóttir og Þorgerður K. Gunnarsdóttir voru fjarverandi við afgreiðslu málsins.
Alþingi, 13. nóvember 2019.
Sigríður Á. Andersen, form. |
Bryndís Haraldsdóttir, frsm. |
Ari Trausti Guðmundsson. |
Gunnar Bragi Sveinsson. | Silja Dögg Gunnarsdóttir. | Smári McCarthy. |