Ferill 270. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
150. löggjafarþing 2019–2020.
Þingskjal 481 — 270. mál.
Síðari umræða.
Nefndarálit
um tillögu til þingsályktunar um staðfestingu ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 72/2019 um breytingu á II. viðauka (Tæknilegar reglugerðir, staðlar, prófanir og vottun) og IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.
Frá utanríkismálanefnd.
Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund Gaut Sturluson frá utanríkisráðuneyti og Margréti Ósk Óskarsdóttur frá Mannvirkjastofnun.
Með tillögunni er leitað heimildar Alþingis til að staðfesta ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 72/2019 frá 29. mars 2019 um breytingu á II. viðauka (Tæknilegar reglugerðir, staðlar, prófanir og vottun) og IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn frá 2. maí 1992 og að fella inn í samninginn reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2017/1369 frá 4. júlí 2017 um setningu ramma fyrir orkumerkingar og um niðurfellingu tilskipunar 2010/30/ESB.
Framsetning tillögunnar telst að mati nefndarinnar í samræmi við 7. gr. reglna um þinglega meðferð EES-mála.
Nefndin leggur til að tillagan verði samþykkt.
Logi Einarsson, Rósa Björk Brynjólfsdóttir og Þorgerður K. Gunnarsdóttir voru fjarverandi við afgreiðslu málsins.
Alþingi, 13. nóvember 2019.
Sigríður Á. Andersen, form. |
Ari Trausti Guðmundsson, frsm. |
Bryndís Haraldsdóttir. |
Gunnar Bragi Sveinsson. | Silja Dögg Gunnarsdóttir. | Smári McCarthy. |