Ferill 273. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


150. löggjafarþing 2019–2020.
Þingskjal 484  —  273. mál.
Síðari umræða.



Nefndarálit


um tillögu til þingsályktunar um staðfestingu ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 125/2019 um breytingu á IX. viðauka (Fjármálaþjónusta) og XIX. viðauka(Neytendavernd) við EES-samninginn.

Frá utanríkismálanefnd.


    Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund Gaut Sturluson frá utanríkisráðuneyti og Guðmund Kára Kárason frá fjármála- og efnahagsráðuneyti.
    Með tillögunni er leitað heimildar Alþingis til að staðfesta ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 125/2019 frá 8. maí 2019 um breytingu á IX. viðauka (Fjármálaþjónusta) og XIX. viðauka (Neytendavernd) við EES-samninginn frá 2. maí 1992 og að fella inn í samninginn tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2014/17/ESB frá 4. febrúar 2014 um lánssamninga fyrir neytendur í tengslum við íbúðarhúsnæði og um breytingu á tilskipun 2008/48/EB og 2013/36/ESB og reglugerð (ESB) nr. 1093/2010.
    Framsetning tillögunnar telst að mati nefndarinnar í samræmi við 7. gr. reglna um þinglega meðferð EES-mála.
    Nefndin leggur til að tillagan verði samþykkt.
    Logi Einarsson, Rósa Björk Brynjólfsdóttir og Þorgerður K. Gunnarsdóttir voru fjarverandi við afgreiðslu málsins.

Alþingi, 13. nóvember 2019.

Sigríður Á. Andersen,
form.
Smári McCarthy,
frsm.
Ari Trausti Guðmundsson.
Bryndís Haraldsdóttir. Gunnar Bragi Sveinsson. Silja Dögg Gunnarsdóttir.