Ferill 704. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


150. löggjafarþing 2019–2020.
Nr. 34/150.

Þingskjal 1461  —  704. mál.


Þingsályktun

um staðfestingu ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 260/2019 um breytingu á IX. viðauka (Fjármálaþjónusta) við EES-samninginn.


    Alþingi ályktar að heimila ríkisstjórninni að staðfesta fyrir Íslands hönd ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 260/2019 frá 25. október 2019 um breytingu á IX. viðauka (Fjármálaþjónusta) við EES-samninginn frá 2. maí 1992 og fella inn í samninginn reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2018/1717 frá 14. nóvember 2018 um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 1093/2010 að því er varðar aðsetur Evrópsku bankaeftirlitsstofnunarinnar.

Samþykkt á Alþingi 19. maí 2020.