Ferill 706. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


150. löggjafarþing 2019–2020.
Nr. 36/150.

Þingskjal 1463  —  706. mál.


Þingsályktun

um staðfestingu ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 165/2019 um breytingu á IX. viðauka (Fjármálaþjónusta) við EES-samninginn.


    Alþingi ályktar að heimila ríkisstjórninni að staðfesta fyrir Íslands hönd ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 165/2019 frá 14. júní 2019 um breytingu á IX. viðauka (Fjármálaþjónusta) við EES-samninginn frá 2. maí 1992 og fella inn í samninginn tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2015/2366 frá 25. nóvember 2015 um greiðsluþjónustu á innri markaðnum, um breytingu á tilskipunum 2002/65/EB, 2009/110/EB og 2013/36/ESB og á reglugerð (ESB) nr. 1093/2010 og niðurfellingu á tilskipun 2007/64/EB og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2017/2055 frá 23. júní 2017 um viðbætur við tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2015/2366 er lúta að tæknilegum eftirlitsstöðlum fyrir samstarf og upplýsingaskipti á milli lögbærra yfirvalda að því er varðar neytingu greiðslustofnana á staðfesturétti og frelsi til að veita þjónustu.

Samþykkt á Alþingi 19. maí 2020.