Ferill 665. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


150. löggjafarþing 2019–2020.
Þingskjal 1749  —  665. mál.
2. umræða.



Nefndarálit með breytingartillögu


um frumvarp til laga um breytingu á lögum um aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum, nr. 46/1980, með síðari breytingum (vinnutími starfsmanna sem veita persónulega notendastýrða aðstoð).

Frá meiri hluta velferðarnefndar.


    Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund Stefán Daníel Jónsson og Jón Þór Þorvaldsson frá félagsmálaráðuneyti, Bryndísi Snæbjörnsdóttur, Friðrik Sigurðsson og Ingu Björk Bjarnadóttur frá Landssamtökunum Þroskahjálp, Sigurjón Unnar Sveinsson og Rúnar Björn Herrera frá Öryrkjabandalagi Íslands, Andra Val Ívarsson frá Bandalagi háskólamanna, Dagnýju Aradóttur Pind frá BSRB og Bryndísi Gunnlaugsdóttur frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga. Umsagnir bárust frá Bandalagi háskólamanna, BSRB, Landssamtökunum Þroskahjálp og Sambandi íslenskra sveitarfélaga.
    Með frumvarpinu er lagt til að framlengd verði til ársloka 2020 heimild til að víkja frá ákvæðum 53. gr. laga um aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum, nr. 46/1980, með samkomulagi samtaka aðila vinnumarkaðarins þannig að hvíldartími verði styttri hjá starfsfólki sem veitir einstaklingum þjónustu á grundvelli 11. gr. laga nr. 38/2018, um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir.
    Meiri hlutinn bendir á að framangreindri heimild var upphaflega ætlað að gilda til ársloka 2016 en var framlengd þrisvar sinnum. Um er að ræða mikilvæga þjónustu við fatlað fólk og finna þarf lausn sem tryggir réttindi þess sem og réttindi starfsfólks sem sinnir notendastýrðri persónulegri aðstoð. Þau réttindi um hvíld sem kveðið er á um í 53. gr. eru lágmarksréttindi sem ætlað er að tryggja öryggi og heilsu starfsfólks. Nauðsynlegt er því að þeirri vinnu sem ljúka átti fyrir rúmum þremur árum verði lokið sem fyrst og fundin lausn sem tryggi sem best réttindi starfsfólks með tilliti til sérstaks eðlis þeirrar þjónustu sem það veitir.
    Fyrrnefnd heimild var í bráðabirgðaákvæði 9 í lögunum sem er fallið úr gildi þar sem síðasta framlenging þess var út árið 2019. Telur meiri hlutinn því rétt að taka ákvæðið upp að nýju í heild. Ef ætla má að vinna við tillögur að lausn tefjist beinir meiri hlutinn því til ráðherra að leggja fram frumvarp til framlengingar áður en gildistími ákvæðisins rennur út svo að ekki verði óvissa um gildi þeirra samninga um notendastýrða persónulega aðstoð sem gerðir eru.
    Auk þeirrar breytingar sem lýst er hér að framan leggur meiri hlutinn til orðalagsbreytingu á fyrirsögn frumvarpsins til að tryggja samræmi við almenna hugtakanotkun yfir notendastýrða persónulega aðstoð, NPA.
    Meiri hlutinn leggur til að frumvarpið verði samþykkt með eftirfarandi

BREYTINGU:



     1.      1. gr. orðist svo:
                  Bráðabirgðaákvæði 9 í lögunum orðast svo:
                  Með samkomulagi samtaka aðila vinnumarkaðarins er heimilt að víkja frá ákvæðum 53. og 56. gr. um hvíldartíma og næturvinnutíma þeirra starfsmanna sem veita einstaklingum þjónustu á grundvelli 11. gr. laga nr. 38/2018, um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir. Sé með slíku samkomulagi vikið frá ákvæði 53. gr. þannig að hvíldartíminn verði styttri hjá viðkomandi starfsmönnum en ákvæðið gerir ráð fyrir skal við það miðað að starfsmennirnir fái eins fljótt og við verður komið samsvarandi hvíldartíma að lágmarki og kveðið er á um í fyrrnefndu ákvæði. Vinnueftirlit ríkisins skal veita umsögn um slíkt samkomulag samtaka aðila vinnumarkaðarins.
                  Ákvæði þetta gildir til 31. desember 2020 og tekur til samninga sem gerðir eru á tímabilinu frá 1. janúar 2020 til 31. desember 2020.
     2.      Fyrirsögn frumvarpsins verði: Frumvarp til laga um breytingu á lögum um aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum, nr. 46/1980, með síðari breytingum (vinnutími starfsmanna sem veita notendastýrða persónulega aðstoð).

    Guðmundur Ingi Kristinsson og Lilja Rafney Magnúsdóttir voru fjarverandi við afgreiðslu málsins en skrifa undir álit þetta samkvæmt heimild í 4. mgr. 18. gr. starfsreglna fyrir fastanefndir Alþingis.

Alþingi, 19. júní 2020.

Helga Vala Helgadóttir,
form., með fyrirvara.
Ólafur Þór Gunnarsson,
frsm.
Vilhjálmur Bjarnason.
Anna Kolbrún Árnadóttir,
með fyrirvara.
Guðmundur Ingi Kristinsson. Halla Signý Kristjánsdóttir.
Lilja Rafney Magnúsdóttir. Vilhjálmur Árnason.