Ferill 217. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


151. löggjafarþing 2020–2021.
Þingskjal 367  —  217. mál.
Síðari umræða.



Nefndarálit


um tillögu til þingsályktunar um staðfestingu ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 16/2020 um breytingu á IX. viðauka (Fjármálaþjónusta) við EES-samninginn.

Frá utanríkismálanefnd.


    Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund Gaut Sturluson frá utanríkisráðuneyti og Gunnlaug Helgason frá fjármála- og efnahagsráðuneyti.
    Með tillögunni er leitað heimildar Alþingis til að staðfesta ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 16/2020 frá 7. febrúar 2020 um breytingu á IX. viðauka (Fjármálaþjónusta) við EES-samninginn frá 2. maí 1992, og fella inn í samninginn reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2019/630 frá 17. apríl 2019 um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 575/2013 að því er varðar lágmarkstryggingarvernd fyrir tapi vegna vanefndra áhættuskuldbindinga.
    Framsetning tillögunnar telst að mati nefndarinnar í samræmi við 7. gr. reglna um þinglega meðferð EES-mála.
    Nefndin leggur til að tillagan verði samþykkt.

Alþingi, 18. nóvember 2020.

Sigríður Á. Andersen,
form., frsm.
Ari Trausti Guðmundsson. Bryndís Haraldsdóttir.
Gunnar Bragi Sveinsson. Logi Einarsson. Njáll Trausti Friðbertsson.
Rósa Björk Brynjólfsdóttir. Silja Dögg Gunnarsdóttir. Þorgerður K. Gunnarsdóttir.