Ferill 219. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
151. löggjafarþing 2020–2021.
Þingskjal 369 — 219. mál.
Síðari umræða.
Nefndarálit
um tillögu til þingsályktunar um staðfestingu ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 63/2020 um breytingu á IX. viðauka (Fjármálaþjónusta) við EES-samninginn.
Frá utanríkismálanefnd.
Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund Gaut Sturluson frá utanríkisráðuneyti og Drífu Sigurðardóttur og Rögnu Bjarnadóttur frá dómsmálaráðuneyti.
Með tillögunni er leitað heimildar Alþingis til að staðfesta ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 63/2020 frá 30. apríl 2020 um breytingu á IX. viðauka (Fjármálaþjónusta) við EES-samninginn frá 2. maí 1992, og fella inn í samninginn tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2018/843 frá 30. maí 2018 um breytingu á tilskipun (ESB) 2015/849 um ráðstafanir gegn því að fjármálakerfið sé notað til peningaþvættis eða til fjármögnunar hryðjuverkastarfsemi og um breytingu á tilskipunum 2009/138/EB og 2013/36/ESB.
Framsetning tillögunnar telst að mati nefndarinnar í samræmi við 7. gr. reglna um þinglega meðferð EES-mála.
Nefndin leggur til að tillagan verði samþykkt.
Alþingi, 18. nóvember 2020.
Sigríður Á. Andersen, form., frsm. |
Ari Trausti Guðmundsson. | Bryndís Haraldsdóttir. |
Gunnar Bragi Sveinsson. | Logi Einarsson. | Njáll Trausti Friðbertsson. |
Rósa Björk Brynjólfsdóttir. | Silja Dögg Gunnarsdóttir. | Þorgerður K. Gunnarsdóttir. |