Ferill 221. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


151. löggjafarþing 2020–2021.
Þingskjal 371  —  221. mál.
Síðari umræða.



Nefndarálit


um tillögu til þingsályktunar um staðfestingu ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 81/2020 um breytingu á IX. viðauka (Fjármálaþjónusta) við EES-samninginn.

Frá utanríkismálanefnd.


    Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund Gaut Sturluson frá utanríkisráðuneyti og Benedikt Hallgrímsson frá fjármála- og efnahagsráðuneyti.
    Með tillögunni er leitað heimildar Alþingis til að staðfesta ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 81/2020 frá 12. júní 2020 um breytingu á IX. viðauka (Fjármálaþjónusta) við EES-samninginn frá 2. maí 1992, og fella inn í samninginn tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2013/50/ESB frá 22. október 2013 um breytingu á tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2004/109/EB um samhæfingu krafna um gagnsæi í tengslum við upplýsingar um útgefendur verðbréfa sem eru skráð á skipulegan markað, tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2003/71/EB um útboðs- og skráningarlýsingu sem birta skal við almennt útboð verðbréfa eða þegar þau eru tekin til skráningar og tilskipun framkvæmdastjórnarinnar 2007/14/EB um nákvæmar reglur til framkvæmdar tilteknum ákvæðum tilskipunar 2004/109/EB.
    Framsetning tillögunnar telst að mati nefndarinnar í samræmi við 7. gr. reglna um þinglega meðferð EES-mála.
    Nefndin leggur til að tillagan verði samþykkt.


Alþingi, 18. nóvember 2020.

Sigríður Á. Andersen,
form., frsm.
Ari Trausti Guðmundsson. Bryndís Haraldsdóttir.
Gunnar Bragi Sveinsson. Logi Einarsson. Njáll Trausti Friðbertsson.
Rósa Björk Brynjólfsdóttir. Silja Dögg Gunnarsdóttir. Þorgerður K. Gunnarsdóttir.