Ferill 315. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
151. löggjafarþing 2020–2021.
Þingskjal 507 — 315. mál.
Síðari umræða.
Nefndarálit
um tillögu til þingsályktunar um staðfestingu ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 165/2020 um breytingu á XVII. viðauka (Hugverkaréttindi) við EES-samninginn.
Frá utanríkismálanefnd.
Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund Gaut Sturluson frá utanríkisráðuneyti og Rán Tryggvadóttur frá mennta- og menningarmálaráðuneyti.
Með tillögunni er leitað heimildar Alþingis til að staðfesta ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 165/2020 frá 23. október um breytingu á XVII. viðauka (Hugverkaréttindi) við EES-samninginn frá 2. maí 1992 og fella inn í samninginn tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2017/1564 frá 13. september 2017 um tiltekna leyfilega notkun á tilteknum verkum og öðru efni sem er verndað af höfundarétti og skyldum réttindum í þágu blindra, sjónskertra eða þeirra sem glíma við aðra prentleturshömlun og um breytingu á tilskipun 2001/29/EB um samræmingu tiltekinna þátta höfundaréttar og skyldra réttinda í upplýsingasamfélaginu.
Framsetning tillögunnar telst að mati nefndarinnar í samræmi við 7. gr. reglna um þinglega meðferð EES-mála.
Nefndin leggur til að tillagan verði samþykkt.
Þorgerður K. Gunnarsdóttir var fjarverandi við afgreiðslu málsins.
Alþingi, 4. desember 2020.
Sigríður Á. Andersen, form. |
Ari Trausti Guðmundsson, frsm. | Bryndís Haraldsdóttir. | |
Gunnar Bragi Sveinsson. | Logi Einarsson. | Njáll Trausti Friðbertsson. | |
Rósa Björk Brynjólfsdóttir. | Silja Dögg Gunnarsdóttir. |