Fundargerð 154. þingi, 0. fundi, boðaður 2023-09-12 14:00, stóð 14:03:17 til 14:30:19 gert 12 16:14
[prenta uppsett í dálka] [<-][->]

ÞINGSETNINGARFUNDUR

þriðjudaginn 12. sept.

Árið 2023, þriðjudaginn 12. september, var hundrað fimmtugasta og fjórða löggefandi Alþingi sett í Reykjavík. Er það hundrað tuttugasta og sjöunda aðalþing í röðinni en hundrað og sjötugasta samkoma frá því er Alþingi var endurreist.

Forseti Íslands, biskup Íslands, forseti Alþingis, ráðherrar og alþingismenn gengu til kirkjunnar úr Alþingishúsinu. Biskup Íslands, frú Agnes M. Sigurðardóttir, predikaði og þjónaði fyrir altari ásamt sr. Sveini Valgeirssyni, sóknarpresti Dómkirkjunnar.

Að lokinni guðsþjónustu gengu þingmenn aftur til Alþingishússins, fundarsalar Alþingis.

Þessir menn skipuðu þingið:

  1. Andrés Ingi Jónsson, 10. þm. Reykv. n.
  2. Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir, 11. þm. Reykv. s.
  3. Ágúst Bjarni Garðarsson, 11. þm. Suðvest.
  4. Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, 1. þm. Reykv. s.
  5. Ásmundur Einar Daðason, 5. þm. Reykv. n.
  6. Ásmundur Friðriksson, 6. þm. Suðurk.
  7. Ásthildur Lóa Þórsdóttir, 3. þm. Suðurk.
  8. Berglind Ósk Guðmundsdóttir, 6. þm. Norðaust.
  9. Bergþór Ólason, 8. þm. Norðvest.
  10. Birgir Ármannsson, 9. þm. Reykv. s.
  11. Birgir Þórarinsson, 9. þm. Suðurk.
  12. Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir, 3. þm. Norðaust.
  13. Bjarni Benediktsson, 1. þm. Suðvest.
  14. Bjarni Jónsson, 4. þm. Norðvest.
  15. Björn Leví Gunnarsson, 6. þm. Reykv. s.
  16. Bryndís Haraldsdóttir, 6. þm. Suðvest.
  17. Dagbjört Hákonardóttir, 11. þm. Reykv. n.
  18. Diljá Mist Einarsdóttir, 6. þm. Reykv. n.
  19. Eyjólfur Ármannsson, 6. þm. Norðvest.
  20. Gísli Rafn Ólafsson, 13. þm. Suðvest.
  21. Guðbrandur Einarsson, 10. þm. Suðurk.
  22. Guðlaugur Þór Þórðarson, 1. þm. Reykv. n.
  23. Guðmundur Ingi Guðbrandsson, 4. þm. Suðvest.
  24. Guðmundur Ingi Kristinsson, 9. þm. Suðvest.
  25. Guðrún Hafsteinsdóttir, 1. þm. Suðurk.
  26. Hafdís Hrönn Hafsteinsdóttir, 7. þm. Suðurk.
  27. Halla Signý Kristjánsdóttir, 7. þm. Norðvest.
  28. Halldóra Mogensen, 3. þm. Reykv. n.
  29. Hanna Katrín Friðriksson, 8. þm. Reykv. s.
  30. Hildur Sverrisdóttir, 5. þm. Reykv. s.
  31. Inga Sæland, 7. þm. Reykv. s.
  32. Ingibjörg Isaksen, 1. þm. Norðaust.
  33. Jakob Frímann Magnússon, 8. þm. Norðaust.
  34. Jódís Skúladóttir, 10. þm. Norðaust.
  35. Jóhann Friðrik Friðriksson, 5. þm. Suðurk.
  36. Jóhann Páll Jóhannsson, 4. þm. Reykv. n.
  37. Jón Gunnarsson, 2. þm. Suðvest.
  38. Katrín Jakobsdóttir, 2. þm. Reykv. n.
  39. Kristrún Frostadóttir, 3. þm. Reykv. s.
  40. Lilja Alfreðsdóttir, 4. þm. Reykv. s.
  41. Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir, 3. þm. Norðvest.
  42. Líneik Anna Sævarsdóttir, 4. þm. Norðaust.
  43. Logi Einarsson, 5. þm. Norðaust.
  44. Njáll Trausti Friðbertsson, 2. þm. Norðaust.
  45. Oddný G. Harðardóttir, 8. þm. Suðurk.
  46. Orri Páll Jóhannsson, 10. þm. Reykv. s.
  47. Óli Björn Kárason, 10. þm. Suðvest.
  48. Sigmar Guðmundsson, 12. þm. Suðvest.
  49. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, 7. þm. Norðaust.
  50. Sigurður Ingi Jóhannsson, 2. þm. Suðurk.
  51. Stefán Vagn Stefánsson, 1. þm. Norðvest.
  52. Steinunn Þóra Árnadóttir, 7. þm. Reykv. n.
  53. Svandís Svavarsdóttir, 2. þm. Reykv. s.
  54. Tómas A. Tómasson, 9. þm. Reykv. n.
  55. Teitur Björn Einarsson, 5. þm. Norðvest.
  56. Vilhjálmur Árnason, 4. þm. Suðurk.
  57. Willum Þór Þórsson, 3. þm. Suðvest.
  58. Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir, 8. þm. Reykv. n.
  59. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, 5. þm. Suðvest.
  60. Þórarinn Ingi Pétursson, 9.þm. Norðaust.
  61. Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir, 2. þm. Norðvest
  62. Þórhildur Sunna Ævarsdóttir, 7. þm. Suðvest.
  63. Þórunn Sveinbjarnardóttir, 8. þm. Suðvest.

Strengjakvartett flutti Vorlauf eftir Hildigunni Rúnarsdóttur.


Forseti Íslands setur þingið.

[14:10]

Horfa

Þá er þingmenn höfðu skipað sér til sætis gekk forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson, til ræðustóls og las forsetabréf um að Alþingi skuli koma saman þriðjudaginn 12. september.

Forseti lýsti yfir að Alþingi Íslendinga væri sett samkvæmt bréfi því sem hann hafði lesið.

Forseti ávarpaði því næst alþingismenn. Við lok ávarpsins stóð þingheimur upp og forsætisráðherra, Katrín Jakobsdóttir, mælti: ,,Heill forseta vorum og fósturjörð. Ísland lifi." Tóku þingmenn undir þessi orð með ferföldu húrrahrópi.

Strengjakvartett flutti Í fögrum dal eftir Emil Thoroddsen.


Ávarp forseta Alþingis.

[14:24]

Forseti Alþingis, Birgir Ármannsson, ávarpaði þingheim.

Horfa

Fundi slitið kl. 14:30.

---------------