Fundargerð 154. þingi, 1. fundi, boðaður 2023-09-12 15:30, stóð 15:31:13 til 15:55:41 gert 12 16:18
[prenta uppsett í dálka] [<-][->]

ÞINGSETNINGARFUNDUR (frh.)

þriðjudaginn 12. sept.,

kl. 3.30 síðdegis.

Dagskrá:

Fjarvistarleyfi:


Minnst látins fyrrverandi alþingismanns, Jóns Ármanns Héðinssonar

[15:31]

Horfa

Forseti minntist Jóns Ármanns Héðinssonar, fyrrverandi alþingismanns, sem lést 6. júlí sl.

[Fundarhlé. --- 15:34]


Afsal þingmennsku.

[15:37]

Horfa

Forseti las bréf frá Helgu Völu Helgadóttur, 4. þm. Reykv. n., þar sem hún afsalar sér þingmennsku.


Varamenn taka þingsæti.

[15:38]

Horfa

Forseti tilkynnti að Berglind Harpa Svavarsdóttir tæki sæti Berglindar Óskar Guðmundsdóttur, 6. þm. Norðaust.


Stjórnir þingflokka.

[15:38]

Horfa

Forseti tilkynnti þá breytingu á stjórn þingflokks Pírata að Halldóra Mogensen tæki við embætti ritara í stað Gísla Rafns Ólafssonar. Jafnframt að sú breyting hefði verið gerð á stjórn þingflokks Sjálfstæðisflokks að Hildur Sverrisdóttir tæki við formennsku í stað Óla Björns Kárasonar.


Mannabreytingar í nefndum.

[15:39]

Horfa

Forseti tilkynnti eftirfarandi mannabreytingar í nefndum: Dagbjört Hákonardóttir tekur sæti sem aðalmaður í allsherjar- og menntamálanefnd í stað Helgu Völu Helgadóttur. Oddný G. Harðardóttir tekur sæti sem aðalmaður í efnahags- og viðskiptanefnd í stað Kristrúnar Frostadóttur og Jóhann Páll Jóhannsson verður varamaður í sömu nefnd í stað Loga Einarssonar. Oddný G. Harðardóttir tekur sæti sem varamaður í umhverfis- og samgöngunefnd og utanríkismálanefnd í stað Kristrúnar Frostadóttur. Kristrún Frostadóttir tekur sæti sem aðalmaður í fjárlaganefnd fyrir Jóhann Pál Jóhannsson en Logi Einarsson tekur sæti sem varamaður í stað Kristrúnar Frostadóttur í sömu nefnd. Dagbjört Hákonardóttir tekur sæti sem varamaður í stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd í stað Helgu Völu Helgadóttur. Að lokum tekur Jóhann Páll Jóhannsson sæti sem aðalmaður í velferðarnefnd í stað Oddnýjar G. Harðardóttur og Dagbjört Hákonardóttir verður varamaður í stað Helgu Völu Helgdóttur í sömu nefnd.

[15:41]

Útbýting þingskjala:


Afbrigði um dagskrármál.

[15:41]

Horfa

Veitt voru afbrigði frá sætaúthlutun vegna sæta þingflokksformanna.


Hlutað um sæti þingmanna, skv. 4. mgr. 3. gr. þingskapa.

Horfa

Sætaúthlutun fór á þessa leið:

  1. sæti er sæti forseta.
  2. sæti hlaut Bergþór Ólason.
  3. sæti hlaut Jódís Skúladóttir.
  4. sæti hlaut Jóhann Friðrik Friðriksson.
  5. sæti hlaut Inga Sæland.
  6. sæti hlaut Sigmar Guðmundsson.
  7. sæti hlaut Guðmundur Ingi Kristinsson.
  8. sæti hlaut Þórhildur Sunna Ævarsdóttir.
  9. sæti hlaut Óli Björn Kárason.
  10. sæti hlaut Diljá Mist Einarsdóttir.
  11. sæti hlaut Bryndís Haraldsdóttir.
  12. sæti hlaut Birgir Þórarinsson.
  13. sæti hlaut Orri Páll Jóhannsson.
  14. sæti hlaut Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir.
  15. sæti hlaut Þórunn Sveinbjarnardóttir.
  16. sæti hlaut Þórarinn Ingi Pétursson.
  17. sæti hlaut Halldóra Mogensen.
  18. sæti hlaut Halla Signý Kristjánsdóttir.
  19. sæti hlaut Vilhjálmur Árnason.
  20. sæti hlaut Stefán Vagn Stefánsson.
  21. sæti hlaut Jóhann Páll Jóhannsson.
  22. sæti hlaut Hildur Sverrisdóttir.
  23. sæti hlaut Ingibjörg Isaksen.
  24. sæti hlaut Jón Gunnarsson.
  25. sæti hlaut Teitur Björn Einarsson.
  26. sæti er sæti varamanns.
  27. sæti hlaut Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir.
  28. sæti hlaut Kristrún Frostadóttir.
  29. sæti hlaut Líneik Anna Sævarsdóttir.
  30. sæti hlaut Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir.
  31. sæti hlaut Birgir Ármannsson.
  32. sæti er sæti varamanns.
  33. sæti hlaut Berglind Harpa Svavarsdóttir.
  34. sæti hlaut Björn Leví Gunnarsson.
  35. sæti hlaut Oddný G. Harðardóttir.
  36. sæti hlaut Gísli Rafn Ólafsson.
  37. sæti hlaut Hafdís Hrönn Hafsteinsdóttir.
  38. sæti er sæti er sæti varamanns.
  39. sæti hlaut Andrés Ingi Jónsson.
  40. sæti hlaut Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir.
  41. sæti hlaut Dagbjört Hákonardóttir.
  42. sæti hlaut Eyjólfur Ármannsson.
  43. sæti hlaut Jakob Frímann Magnússon.
  44. sæti hlaut Hanna Katrín Friðriksson.
  45. sæti hlaut Logi Einarsson.
  46. sæti hlaut Ásthildur Lóa Þórsdóttir.
  47. sæti hlaut Ágúst Bjarni Garðarsson.
  48. sæti hlaut Sigmundur Davíð Gunnlaugsson.
  49. sæti hlaut Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir.
  50. sæti hlaut Njáll Trausti Friðbertsson.
  51. sæti er sæti varamanns.
  52. sæti hlaut Ásmundur Friðriksson.
  53. sæti hlaut Tómas A. Tómasson.
  54. sæti hlaut Guðbrandur Einarsson.
  55. sæti hlaut Bjarni Jónsson.
  56. sæti er sæti varamanns.
  57. sæti hlaut Steinunn Þóra Árnadóttir.
  58. er sæti heilbrigðisráðherra.
  59. er sæti félags- og vinnumarkaðsráðherra.
  60. er sæti menningar- og viðskiptaráðherra.
  61. er sæti umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra.
  62. er sæti innviðaráðherra.
  63. er sæti forsætisráðherra.
  64. er sæti fjármála- og efnahagsráðherra.
  65. er sæti matvælaráðherra.
  66. er sæti utanríkisráðherra.
  67. er sæti mennta- og barnamálaráðherra.
  68. er sæti háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra.
  69. er sæti dómsmálaráðherra.

Tilkynning um stefnuræðu forsætisráðherra.

[15:54]

Forseti tilkynnti að stefnuræða forsætisráðherra og umræður um hana færu fram miðvikudagskvöldið 13. september.

Horfa

Fundi slitið kl. 15:55.

---------------