Aðrar útgáfur af skjalinu:
PDF
Word Perfect.
Þingskjal 777, 149. löggjafarþing 440. mál: fjármál stjórnmálasamtaka og frambjóðenda og um upplýsingaskyldu þeirra (aukið gagnsæi í stjórnmálum, framlög, birting ársreikninga o.fl.).
Lög nr. 139 21. desember 2018.
Stjórnmálasamtök skulu fyrir 1. nóvember ár hvert skila ríkisendurskoðanda reikningum sínum fyrir síðastliðið ár, sbr. 8. gr., árituðum af endurskoðendum. Ríkisendurskoðandi skal í kjölfarið, eins fljótt og unnt er, birta ársreikning stjórnmálasamtaka. Auk þess skal ríkisendurskoðandi birta nöfn allra lögaðila sem veita framlög til stjórnmálastarfsemi sem og fjárhæð þeirra. Einnig skal birta nöfn einstaklinga sem veitt hafa framlög sem eru metin á meira en 300.000 kr.
Bann við nafnlausum áróðri.
Stjórnmálasamtökum, kjörnum fulltrúum þeirra og frambjóðendum, sem og frambjóðendum í persónukjöri, er óheimilt að fjármagna, birta eða taka þátt í birtingu efnis eða auglýsinga í tengslum við stjórnmálabaráttu nema fram komi við birtingu að efnið sé birt að tilstuðlan eða með þátttöku þeirra.
Þrátt fyrir ákvæði 1. mgr. skulu ákvæði laga þessara er varða breytt reikningsskil og upplýsingaskyldu stjórnmálasamtaka, sbr. b-lið 6. gr. og 8. gr., koma til framkvæmda við reikningsskil stjórnmálasamtaka árið 2020, fyrir reikningsárið 2019. Stjórnmálasamtök skulu haga reikningsskilum sínum árið 2019, fyrir reikningsárið 2018, eftir þeim reglum sem voru í gildi fyrir gildistöku laga þessara.
Þingskjal 777, 149. löggjafarþing 440. mál: fjármál stjórnmálasamtaka og frambjóðenda og um upplýsingaskyldu þeirra (aukið gagnsæi í stjórnmálum, framlög, birting ársreikninga o.fl.).
Lög nr. 139 21. desember 2018.
Lög um breytingu á lögum um fjármál stjórnmálasamtaka og frambjóðenda og um upplýsingaskyldu þeirra, nr. 162/2006, með síðari breytingum (aukið gagnsæi í stjórnmálum, framlög, birting ársreikninga o.fl.).
1. gr.
Í stað orðanna „og efla lýðræðið“ í 2. málsl. 1. gr. laganna kemur: tryggja starfsskilyrði og sjálfstæði stjórnmálasamtaka og efla lýðræði og gagnsæi stjórnmála.2. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 2. gr. laganna:- Í stað orðsins „markaðsverði“ í 2. málsl. 4. tölul. kemur: vörum og þjónustu sem veittir eru af markaðsverði og standa öðrum viðskiptamönnum ekki til boða.
- 5. tölul. orðast svo: Tengdir aðilar:
- Lögaðilar þar sem svo háttar til að annar aðili er í raun undir stjórn hins þar sem sá síðarnefndi á meiri hluta hlutafjár, stofnfjár eða atkvæðisréttar í þeim fyrrnefnda, sbr. einnig 2. gr. laga um hlutafélög, nr. 2/1995, 2. gr. laga um einkahlutafélög, nr. 138/1994, og 4. tölul. 2. gr. laga um ársreikninga, nr. 3/2006, um skilgreiningu á móðurfélagi og dótturfélagi.
- Lögaðilar þar sem svo háttar til að einstaklingur á meiri hluta hlutafjár, stofnfjár eða atkvæðisréttar í báðum eða öllum lögaðilunum.
3. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 3. gr. laganna:- Við bætist ný málsgrein sem verður 1. mgr., svohljóðandi:
- 1. mgr. orðast svo:
- 1. málsl. 2. mgr. orðast svo: Stjórnmálasamtök sem bjóða fram í þremur kjördæmum eða fleiri í kosningum til Alþingis geta að loknum kosningum sótt um sérstakan fjárstyrk úr ríkissjóði til að mæta útlögðum kostnaði við kosningabaráttu, að hámarki 750.000 kr. fyrir hvert kjördæmi sem boðið er fram í.
- 3. mgr. orðast svo:
4. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 5. gr. laganna:- 1. mgr. orðast svo:
- Í stað orðanna „er heimilt að setja“ í 1. málsl. 2. mgr. kemur: setur.
- Á eftir 1. málsl. 2. mgr. kemur nýr málsliður, svohljóðandi: Reglurnar skal taka til endurskoðunar árlega.
5. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 7. gr. laganna:- 1. mgr. orðast svo:
- Í stað orðanna „skv. 1. mgr.“ í 2. mgr. kemur: skv. 1. málsl. 1. mgr.
- 3. mgr. orðast svo:
- Í stað fjárhæðanna „1 millj. kr.“, „75 kr.“, „100 kr.“, „125 kr.“, „150 kr.“ og „175 kr.“ í 4. mgr. kemur: 2 millj. kr.; 140 kr.; 185 kr.; 230 kr.; 275 kr.; og: 320 kr.
- Fyrirsögn greinarinnar orðast svo: Hámarksframlög og kostnaður vegna kosningabaráttu.
6. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 1. mgr. 8. gr. laganna:- Í stað fjárhæðarinnar „400.000 kr.“ í 2. málsl. kemur: 550.000 kr.
- Í stað 4. málsl. koma fimm nýir málsliðir, svohljóðandi: Í ársreikningi skulu tekjur sundurliðaðar eftir uppruna þannig að greint sé á milli ríkisframlags, framlaga frá sveitarfélögum, framlaga frá lögaðilum, félagsgjalda og framlaga frá einstaklingum. Meðal meginflokka gjalda skal tilgreina kostnað vegna alþingiskosninga og sveitarstjórnarkosninga, eftir atvikum. Í skýringum skal kostnaður vegna alþingiskosninga og sveitarstjórnarkosninga sundurliðaður samkvæmt nánari leiðbeiningum ríkisendurskoðanda. Greina skal sérstaklega alla móttekna afslætti frá markaðsverði sem almennt standa öðrum viðskiptamönnum ekki til boða, virði framlaga sem veitt eru í öðrum gæðum en fjárframlögum sem og sölu á þjónustu, vöru eða eignum á yfirverði. Ríkisendurskoðandi gefur út frekari leiðbeiningar um reikningsskil stjórnmálasamtaka.
7. gr.
- Í stað orðsins „Ríkisendurskoðunar“ í 2. málsl. 2. mgr. 8. gr., 5. málsl. 1. mgr. 10. gr., 2. mgr. 11. gr. og 2. mgr. 12. gr. laganna kemur: ríkisendurskoðanda.
- Í stað orðsins „Ríkisendurskoðun“ í 3. málsl. 2. mgr. 8. gr., 6. málsl. 1. mgr. 10. gr., 2. mgr. 10. gr. og tvívegis í 1. mgr. 11. gr. laganna kemur, í viðeigandi beygingarfalli: ríkisendurskoðandi.
8. gr.
9. gr. laganna orðast svo:Stjórnmálasamtök skulu fyrir 1. nóvember ár hvert skila ríkisendurskoðanda reikningum sínum fyrir síðastliðið ár, sbr. 8. gr., árituðum af endurskoðendum. Ríkisendurskoðandi skal í kjölfarið, eins fljótt og unnt er, birta ársreikning stjórnmálasamtaka. Auk þess skal ríkisendurskoðandi birta nöfn allra lögaðila sem veita framlög til stjórnmálastarfsemi sem og fjárhæð þeirra. Einnig skal birta nöfn einstaklinga sem veitt hafa framlög sem eru metin á meira en 300.000 kr.
9. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 10. gr. laganna:- Á eftir 1. málsl. 1. mgr. koma tveir nýir málsliðir, svohljóðandi: Tekjur skulu sundurliðaðar eftir uppruna þannig að greint sé á milli ríkisframlags, framlaga frá sveitarfélögum, framlaga frá lögaðilum, félagsgjalda og framlaga frá einstaklingum og einnig greint frá helstu stærðum í efnahagsreikningi. Greina skal sérstaklega alla móttekna afslætti frá markaðsverði sem almennt standa öðrum viðskiptamönnum ekki til boða, virði framlaga sem veitt eru í öðrum gæðum en fjárframlögum sem og sölu á þjónustu, vöru eða eignum á yfirverði.
- Í stað fjárhæðarinnar „400.000 kr.“ í 3. mgr. kemur: 550.000 kr.
10. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 1. mgr. 11. gr. laganna:- Í stað orðanna „útdrátt úr reikningum með samræmdum hætti“ í 2. málsl. kemur: áritaðan reikning frambjóðenda.
- 3.–5. málsl. falla brott.
- Í stað fjárhæðarinnar „200.000 kr.“ í 7. málsl. kemur: 300.000 kr.
11. gr.
Á undan 12. gr. laganna kemur ný grein ásamt fyrirsögn, svohljóðandi, og breytist greinatala samkvæmt því:12. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 12. gr. laganna:- Á eftir 2. mgr. kemur ný málsgrein, svohljóðandi:
- Í stað orðanna „1. eða 2. mgr.“ í 3. mgr. kemur: 1.–3. mgr.
13. gr.
Fyrirsögn VI. kafla laganna orðast svo: Gagnsæi í stjórnmálabaráttu, viðurlög og gildistaka.14. gr.
Ákvæði til bráðabirgða I og II í lögunum falla brott.15. gr.
Lög þessi öðlast gildi 1. janúar 2019.Þrátt fyrir ákvæði 1. mgr. skulu ákvæði laga þessara er varða breytt reikningsskil og upplýsingaskyldu stjórnmálasamtaka, sbr. b-lið 6. gr. og 8. gr., koma til framkvæmda við reikningsskil stjórnmálasamtaka árið 2020, fyrir reikningsárið 2019. Stjórnmálasamtök skulu haga reikningsskilum sínum árið 2019, fyrir reikningsárið 2018, eftir þeim reglum sem voru í gildi fyrir gildistöku laga þessara.
Samþykkt á Alþingi 14. desember 2018.