Ráðuneyti frá 1917

1. Fyrsta ráðuneyti Jóns Magnússonar

4. janúar 1917 – 25. febrúar 1920

(Heimastjórnarflokkur, Sjálfstæðisflokkur þversum og Framsóknarflokkur.)

  • Jón Magnússon forsætisráðherra. Hann fór einnig með dóms- og kirkjumálaráðuneytið.
  • Björn Kristjánsson fjármálaráðherra. Hann fékk lausn frá embætti 28. ágúst 1917. 
  • Sigurður Jónsson atvinnumálaráðherra.

Breyting 28. ágúst 1917:

  • Sigurður Eggerz fjármálaráðherra.

Ráðuneytið fékk lausn 12. ágúst 1919 en gegndi störfum til 25. febrúar 1920.

2. Annað ráðuneyti Jóns Magnússonar

25. febrúar 1920 – 7. mars 1922

(Heimastjórnarflokkur og ráðherra utan flokka.)

  • Jón Magnússon forsætisráðherra. Hann fór einnig með dóms- og kirkjumálaráðuneytið.
  • Magnús Guðmundsson fjármálaráðherra. Hann gegndi jafnframt embætti atvinnumálaráðherra eftir andlát Péturs Jónssonar.
  • Pétur Jónsson atvinnumálaráðherra. Hann andaðist 20. janúar 1922. 

Ráðuneytið fékk lausn 2. mars 1922 en gegndi störfum til 7. mars 1922. 

3. Ráðuneyti Sigurðar Eggerz

7. mars 1922 – 22. mars 1924

(Sjálfstæðisflokkur, Framsóknarflokkur og ráðherra utan flokka.)

  •  Sigurður Eggerz forsætisráðherra. Hann fór einnig með dóms- og kirkjumálaráðuneytið.
  • Klemens Jónsson atvinnumálaráðherra. Hann fór einnig með fjármálaráðuneytið eftir afsögn Magnúsar Jónssonar.
  • Magnús Jónsson fjármálaráðherra. Hann fékk lausn frá embætti 18. apríl 1923.

 Ráðuneytið fékk lausn 5. mars 1924 en gegndi störfum til 22. mars 1924. 

4. Þriðja ráðuneyti Jóns Magnússonar

22. mars 1924 – 8. júlí 1926

(Íhaldsflokkur.)  

  • Jón Magnússon forsætisráðherra. Hann andaðist 23. júní 1926.
  • Jón Þorláksson fjármálaráðherra.
  • Magnús Guðmundsson atvinnumálaráðherra. Hann gegndi störfum forsætisráðherra frá andláti Jóns Magnússonar til 8. júlí 1926.

5. Ráðuneyti Jóns Þorlákssonar

8. júlí 1926 – 28. ágúst 1927

(Íhaldsflokkur.) 

  • Jón Þorláksson forsætisráðherra. Hann fór einnig með fjármálaráðuneytið.  
  • Magnús Guðmundsson atvinnu- og dómsmálaráðherra.  

Ráðuneytið fékk lausn 28. júlí 1927 en gegndi störfum til 28. ágúst 1927.

6. Ráðuneyti Tryggva Þórhallssonar

28. ágúst 1927 – 3. júní 1932

(Framsóknarflokkur.)

  • Tryggvi Þórhallsson forsætisráðherra. Hann fór einnig með atvinnu- og samgöngumálaráðuneytið. Hann tók við öðrum ráðuneytum 20. apríl 1931.
  • Jónas Jónsson dómsmálaráðherra. Hann fékk lausn frá embætti 20. apríl 1931.
  • Magnús Kristjánsson fjármálaráðherra. Hann andaðist 8. desember 1928 og gegndi Tryggvi Þórhallsson embætti fjármálaráðherra til 7. mars 1929.

Breyting 7. mars 1929:  

  • Einar Árnason fjármálaráðherra. Hann fékk lausn frá embætti 20. apríl 1931.

Breyting 20. apríl 1931:

  •  Tryggvi Þórhallsson forsætis-, fjármála- og dóms- og kirkjumálaráðherra. Hann tók við öðru ráðuneyti 20. ágúst 1931.
  •  Sigurður Kristinsson atvinnu- og samgöngumálaráðherra. Hann fékk lausn frá embætti 20. ágúst 1931.

Breyting 20. ágúst 1931:

  •  Tryggvi Þórhallsson forsætis- og atvinnu- og samgöngumálaráðherra (á ný).
  •  Ásgeir Ásgeirsson fjármálaráðherra.
  •  Jónas Jónsson dómsmálaráðherra (á ný).

 Ráðuneytið fékk lausn 28. maí 1932 en gegndi störfum til 3. júní 1932.

7. Ráðuneyti Ásgeirs Ásgeirssonar

3. júní 1932 – 28. júlí 1934

(Framsóknarflokkur og Sjálfstæðisflokkur.)  

  • Ásgeir Ásgeirsson forsætisráðherra. Hann fór einnig með fjármálaráðuneytið. 
  • Magnús Guðmundsson dómsmálaráðherra. Hann fór einnig með sjávarútvegs-, iðnaðar-, samgöngu- og félagsmál. Hann fékk lausn frá embætti 11. nóvember 1932.  
  • Þorsteinn Briem atvinnumálaráðherra. Hann fór einnig með kirkju- og kennslumál (frá 23. júní 1932).

Breyting 14. nóvember 1932:  

  • Ólafur Thors dómsmálaráðherra. Hann fékk lausn frá embætti 23. desember 1932. 
     Breyting 23. desember 1932:
  •  Magnús Guðmundsson dómsmálaráðherra (á ný). 

Ráðuneytið fékk lausn 16. nóvember 1933 en gegndi störfum til 28. júlí 1934.

8. Fyrsta ráðuneyti Hermanns Jónassonar

28. júlí 1934 – 2. apríl 1938

(Framsóknarflokkur og Alþýðuflokkur.) 

  • Hermann Jónasson forsætisráðherra. Hann fór einnig með dóms- og kirkjumálaráðuneytið, svo og landbúnaðarmál og vegamál.
  • Eysteinn Jónsson fjármálaráðherra.
  • Haraldur Guðmundsson atvinnumálaráðherra. Hann fór einnig með utanríkis-, heilbrigðis- og kennslumál. Hann fékk lausn frá embætti 20. mars 1938 og gegndi Hermann Jónasson ráðherraembætti hans til 2. apríl 1938. 

9. Annað ráðuneyti Hermanns Jónassonar

2. apríl 1938 – 17. apríl 1939

(Framsóknarflokkur.)

  • Hermann Jónasson forsætisráðherra. Hann fór einnig með dóms- og kirkjumálaráðuneytið, svo og landbúnaðarmál.
  • Eysteinn Jónsson fjármálaráðherra. 
  • Skúli Guðmundsson atvinnumálaráðherra. Hann fór einnig með heilbrigðismál.

10. Þriðja ráðuneyti Hermanns Jónassonar

17. apríl 1939 – 18. nóvember 1941

(Framsóknarflokkur, Sjálfstæðisflokkur og Alþýðuflokkur.)  

  • Hermann Jónasson forsætisráðherra. Hann fór einnig með dóms- og kirkjumálaráðuneytið, svo og landbúnaðarmál.
  • Stefán Jóh. Stefánsson utanríkis- og félagsmálaráðherra.
  • Eysteinn Jónsson viðskiptamálaráðherra.
  • Jakob Möller fjármálaráðherra. Hann fór einnig með iðnaðarmál.
  • Ólafur Thors atvinnu- og samgöngumálaráðherra

Ráðuneytið fékk lausn 7. nóvember 1941 en gegndi störfum til 18. nóvember 1941 er það var endurskipað.

11. Fjórða ráðuneyti Hermanns Jónassonar

18. nóvember 1941 – 16. maí 1942

(Framsóknarflokkur, Sjálfstæðisflokkur og Alþýðuflokkur.)

  • Hermann Jónasson forsætisráðherra. Hann fór einnig með dóms- og kirkjumálaráðuneytið, svo og landbúnaðarmál.
  • Stefán Jóh. Stefánsson utanríkis- og félagsmálaráðherra. Hann fékk lausn frá embætti 17. janúar 1942.
  • Eysteinn Jónsson viðskiptamálaráðherra. 
  • Jakob Möller fjármálaráðherra. Hann fór einnig með iðnaðarmál, svo og félagsmál frá 17. janúar 1942.  
  • Ólafur Thors atvinnu- og samgöngumálaráðherra. Hann fór einnig með utanríkisráðuneytið frá 17. janúar 1942.

Ráðuneytið fékk lausn 16. maí 1942.

12. Fyrsta ráðuneyti Ólafs Thors

16. maí 1942 – 16. desember 1942

(Sjálfstæðisflokkur.)  

  • Ólafur Thors forsætisráðherra. Hann fór einnig með utanríkisráðuneytið, svo og landbúnaðar-, vega- og sjávarútvegsmál. 
  • Jakob Möller fjármála- og dómsmálaráðherra. Hann fór einnig með félagsmál.  
  • Magnús Jónsson atvinnu- og viðskiptamálaráðherra. Hann fór einnig með kirkju- og kennslumál.

Ráðuneytið fékk lausn 14. nóvember 1942 en gegndi störfum til 16. desember 1942. 

13. Ráðuneyti Björns Þórðarsonar

16. desember 1942 – 21. október 1944

(Utanþingsstjórn.)

  • Björn Þórðarson forsætisráðherra. Hann fór einnig með heilbrigðis- og kirkjumál. 
  • Vilhjálmur Þór utanríkis- og atvinnumálaráðherra.
  • Björn Ólafsson fjármála- og viðskiptamálaráðherra.
  • Einar Arnórsson dómsmálaráðherra. Hann fór einnig með menntamál. Hann fékk lausn frá embætti 21. september 1944 og tók þá Björn Þórðarson við ráðherrastörfum hans.

Breyting 22. desember 1942:

  • Jóhann Sæmundsson félagsmálaráðherra. Hann fékk lausn frá embætti 19. apríl 1943 og tók þá Björn Þórðarson við ráðherraembætti hans.

Ráðuneytið fékk lausn 16. september 1944 en gegndi störfum til 21. október 1944.

14. Annað ráðuneyti Ólafs Thors

21. október 1944 – 4. febrúar 1947

(Sjálfstæðisflokkur, Sósíalistaflokkur og Alþýðuflokkur.)

  • Ólafur Thors forsætisráðherra. Hann fór einnig með utanríkisráðuneytið.
  •  Áki Jakobsson atvinnumálaráðherra. Hann fór einnig með flugmál.
  •  Brynjólfur Bjarnason menntamálaráðherra.
  •  Emil Jónsson samgöngumálaráðherra. Hann fór einnig með iðnaðarmál og kirkjumál. 
  •  Finnur Jónsson dómsmálaráðherra. Hann fór einnig með félags- og verslunarmál. 
  •  Pétur Magnússon fjármála- og viðskiptamálaráðherra. Hann fór einnig með landbúnaðarmál.

 Ráðuneytið fékk lausn 10. október 1946 en gegndi störfum til 4. febrúar 1947.

15. Ráðuneyti Stefáns Jóh. Stefánssonar

4. febrúar 1947 – 6. desember 1949

(Alþýðuflokkur, Sjálfstæðisflokkur og Framsóknarflokkur.)

  • Stefán Jóh. Stefánsson forsætisráðherra. Hann fór einnig með félagsmálaráðuneytið.
  •  Bjarni Benediktsson utanríkis- og dómsmálaráðherra. Hann fór einnig með verslunarmál.
  •  Bjarni Ásgeirsson landbúnaðarráðherra. Hann fór einnig með orkumál. 
  •  Emil Jónsson samgöngu- og iðnaðar- og viðskiptamálaráðherra.
  •  Eysteinn Jónsson menntamálaráðherra. Hann fór einnig með kirkju-, heilbrigðis- og flugmál.
  •  Jóhann Þ. Jósefsson fjármála- og atvinnumálaráðherra.

 Ráðuneytið fékk lausn 2. nóvember 1949 en gegndi störfum til 6. desember 1949.

16. Þriðja ráðuneyti Ólafs Thors

6. desember 1949 – 14. mars 1950

(Sjálfstæðisflokkur.)

  • Ólafur Thors forsætisráðherra. Hann fór einnig með félagsmálaráðuneytið.
  •  Bjarni Benediktsson utanríkis-, dóms- og menntamálaráðherra.
  •  Björn Ólafsson fjármála- og viðskiptamálaráðherra.
  •  Jóhann Þ. Jósefsson sjávarútvegs- og iðnaðarmálaráðherra. Hann fór einnig með heilbrigðis- og flugmál.
  •  Jón Pálmason landbúnaðarráðherra. Hann fór einnig með orku- og vegamál.

 Ráðuneytið fékk lausn 2. mars 1950 en gegndi störfum til 14. mars 1950.

17. Ráðuneyti Steingríms Steinþórssonar

14. mars 1950 – 11. september 1953

(Framsóknarflokkur og Sjálfstæðisflokkur.)

  • Steingrímur Steinþórsson forsætisráðherra. Hann fór einnig með félagsmálaráðuneytið og heilbrigðismál.
  •  Bjarni Benediktsson utanríkis- og dómsmálaráðherra.
  •  Björn Ólafsson mennta- og viðskiptamálaráðherra. Hann fór einnig með flugmál. 
  •  Eysteinn Jónsson fjármálaráðherra.
  •  Hermann Jónasson landbúnaðar- og samgöngumálaráðherra. Hann fór einnig með kirkju- og orkumál.
  •  Ólafur Thors sjávarútvegs- og iðnaðarmálaráðherra.

 Ráðuneytið fékk lausn 11. september 1953.

18. Fjórða ráðuneyti Ólafs Thors

11. september 1953 – 24. júlí 1956

(Sjálfstæðisflokkur og Framsóknarflokkur.)

  • Ólafur Thors forsætisráðherra. Hann fór einnig með sjávarútvegsmál.
  •  Kristinn Guðmundsson utanríkis- og samgöngumálaráðherra.
  •  Bjarni Benediktsson dóms- og menntamálaráðherra.
  •  Eysteinn Jónsson fjármálaráðherra. Hann vék úr ráðherraembætti um sinn 14. apríl 1954 vegna veikinda. 
  •  Ingólfur Jónsson viðskipta- og iðnaðarmálaráðherra. Hann fór einnig með heilbrigðis- og flugmál.
  •  Steingrímur Steinþórsson landbúnaðar- og félagsmálaráðherra. Hann fór einnig með kirkju- og orkumál.

Breyting 14. apríl 1954:

  •  Skúli Guðmundsson fjármálaráðherra. Hann fékk lausn frá embætti 8. september 1954.

 Breyting 8. september 1954:

  •  Eysteinn Jónsson fjármálaráðherra (á ný).

Ráðuneytið fékk lausn 27. mars 1956 en gegndi störfum til 24. júlí 1956.

19. Fimmta ráðuneyti Hermanns Jónassonar

24. júlí 1956 – 23. desember 1958

(Framsóknarflokkur, Alþýðubandalag og Alþýðuflokkur.)

  • Hermann Jónasson forsætisráðherra. Hann fór einnig með dóms- og kirkjumálaráðuneytið, svo og landbúnaðar-, orku- og vegamál.
  • Guðmundur Í. Guðmundsson utanríkisráðherra. Hann fór einnig með tryggingamál. Hann vék úr ráðherraembætti um sinn 3. ágúst 1956 vegna veikinda.
  •  Eysteinn Jónsson fjármála- og samgöngumálaráðherra.
  • Gylfi Þ. Gíslason mennta- og iðnaðarmálaráðherra.
  • Hannibal Valdimarsson félagsmálaráðherra. Hann fór einnig með verðlags- og heilbrigðismál. 
  • Lúðvík Jósepsson sjávarútvegs- og viðskiptamálaráðherra.

Breyting 3. ágúst 1956:

  • Emil Jónsson utanríkisráðherra. Hann fékk lausn frá embætti 17. október 1956.

Breyting 17. október 1956:

  • Guðmundur Í. Guðmundsson utanríkisráðherra (á ný).

Ráðuneytið fékk lausn 4. desember 1958 en gegndi störfum til 23. desember 1958.

20. Ráðuneyti Emils Jónssonar

23. desember 1958 – 20. nóvember 1959

(Alþýðuflokkur.)

  • Emil Jónsson forsætisráðherra. Hann fór einnig með samgöngumálaráðuneytið, svo og sjávarútvegsmál og orkumál.
  •  Guðmundur Í. Guðmundsson utanríkis- og fjármálaráðherra.
  • Friðjón Skarphéðinsson dóms- og kirkjumála- og félagsmálaráðherra. Hann fór einnig með landbúnaðarmál. 
  • Gylfi Þ. Gíslason mennta-, og viðskiptamálaráðherra. Hann fór einnig með iðnaðarmál.

Ráðuneytið fékk lausn 19. nóvember 1959 en gegndi störfum til næsta dags, 20. nóvember.

21. Fimmta ráðuneyti Ólafs Thors

20. nóvember 1959 – 14. nóvember 1963

(Sjálfstæðisflokkur og Alþýðuflokkur.)

  • Ólafur Thors forsætisráðherra. Í forföllum hans 14. september til 31. desember 1961 gegndi Bjarni Benediktsson embætti forsætisráðherra.
  • Guðmundur Í. Guðmundsson utanríkisráðherra.
  • Bjarni Benediktsson dóms- og kirkjumálaráðherra. Hann fór einnig með iðnaðarmál.
  • Emil Jónsson sjávarútvegs- og félagsmálaráðherra.
  • Gunnar Thoroddsen fjármálaráðherra.
  • Gylfi Þ. Gíslason mennta- og viðskiptamálaráðherra.
  • Ingólfur Jónsson landbúnaðar- og samgöngumálaráðherra. Hann fór einnig með orkumál.

Breyting 14. september 1961:

  • Jóhann Hafstein dóms- og kirkjumálaráðherra. Hann fékk lausn frá embætti 31. desember 1961 (er Bjarni Benediktsson tók á ný við ráðherrastörfum er hann hafði gegnt).

Hinn 14. nóvember 1963 fékk Ólafur Thors forsætisráðherra lausn frá embætti og er ráðuneytið kennt við hinn nýja forsætisráðherra, Bjarna Benediktsson, frá þeim tíma.

22. Ráðuneyti Bjarna Benediktssonar

14. nóvember 1963 – 10. júlí 1970

(Sjálfstæðisflokkur og Alþýðuflokkur.)

  • Bjarni Benediktsson forsætisráðherra.
  • Guðmundur Í. Guðmundsson utanríkisráðherra. Hann fékk lausn frá embætti 31. ágúst 1965.
  • Emil Jónsson sjávarútvegs- og félagsmálaráðherra. Hann tók við öðru ráðuneyti 31. ágúst 1965.
  • Gunnar Thoroddsen fjármálaráðherra. Hann fékk lausn frá embætti 8. maí 1965. 
  • Gylfi Þ. Gíslason mennta- og viðskiptamálaráðherra.
  • Ingólfur Jónsson landbúnaðar- og samgöngumálaráðherra. Hann fór einnig með orkumál, fram til ársloka 1969.
  •  Jóhann Hafstein dóms- og kirkjumálaráðherra. Hann fór einnig með iðnaðarmál, og iðnaðarráðuneytið frá 1. janúar 1970.

Breyting 8. maí 1965:

  • Magnús Jónsson fjármálaráðherra. Hann fór einnig með Hagstofu Íslands frá 1. janúar 1970.

Breyting 31. ágúst 1965:

  • Emil Jónsson utanríkisráðherra. Hann fór einnig með félagsmálaráðuneytið frá 1. janúar 1970.
  • Eggert G. Þorsteinsson sjávarútvegs- og félagsmálaráðherra. Hann fór með heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið í stað félagsmálaráðuneytis frá 1. janúar 1970.

Bjarni Benediktsson forsætisráðherra lést 10. júlí 1970 og er ráðuneytið kennt við hinn nýja forsætisráðherra, Jóhann Hafstein, frá þeim tíma.

23. Ráðuneyti Jóhanns Hafsteins

10. júlí 1970 – 14. júlí 1971

(Sjálfstæðisflokkur og Alþýðuflokkur.)

  • Jóhann Hafstein forsætisráðherra. Hann fór einnig með iðnaðarráðuneytið, svo og dóms- og kirkjumálaráðuneytið til 10. október 1970.
  • Emil Jónsson utanríkis- og félagsmálaráðherra.
  • Eggert G. Þorsteinsson sjávarútvegs-, heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra.
  • Gylfi Þ. Gíslason menntamála- og viðskiptaráðherra.
  • Ingólfur Jónsson landbúnaðar- og samgönguráðherra.
  • Magnús Jónsson fjármálaráðherra. Hann fór einnig með Hagstofu Íslands. 

Breyting 10. október 1970:

  • Auður Auðuns dóms- og kirkjumálaráðherra.

 Ráðuneytið fékk lausn 15. júní 1971 en gegndi störfum til 14. júlí 1971.

24. Fyrra ráðuneyti Ólafs Jóhannessonar

14. júlí 1971 – 28. ágúst 1974

(Framsóknarflokkur, Alþýðubandalag og Samtök frjálslyndra og vinstri manna.)

  • Ólafur Jóhannesson forsætisráðherra. Hann fór einnig með dóms- og kirkjumálaráðuneytið.
  • Einar Ágústsson utanríkisráðherra.
  •  Halldór E. Sigurðsson fjármála- og landbúnaðarráðherra.
  •  Hannibal Valdimarsson félagsmála- og samgönguráðherra. Hann fékk lausn frá embætti 16. júlí 1973.
  •  Lúðvík Jósepsson sjávarútvegs- og viðskiptaráðherra.
  •  Magnús Kjartansson heilbrigðis- og tryggingamála- og iðnaðarráðherra. 
  • Magnús Torfi Ólafsson menntamálaráðherra. Hann fór einnig með Hagstofu Íslands, svo og félagsmála- og samgönguráðuneytið frá 6. maí 1974.

Breyting 16. júlí 1973:

  • Björn Jónsson félagsmála- og samgönguráðherra. Hann fékk lausn frá embætti 6. maí 1974. 

Ráðuneytið fékk lausn 2. júlí 1974 en gegndi störfum til 28. ágúst 1974.

25. Ráðuneyti Geirs Hallgrímssonar

28. ágúst 1974 – 1. september 1978

(Sjálfstæðisflokkur og Framsóknarflokkur.)

  • Geir Hallgrímsson forsætisráðherra. Hann fór einnig með Hagstofu Íslands.
  • Einar Ágústsson utanríkisráðherra.
  • Gunnar Thoroddsen iðnaðar- og félagsmálaráðherra.
  • Halldór E. Sigurðsson landbúnaðar- og samgönguráðherra.
  • Matthías Bjarnason sjávarútvegs-, heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra. 
  •  Matthías Á. Mathiesen fjármálaráðherra.
  • Ólafur Jóhannesson dóms- og kirkjumála- og viðskiptaráðherra.
  • Vilhjálmur Hjálmarsson menntamálaráðherra.

Ráðuneytið fékk lausn 27. júní 1978 en gegndi störfum til 1. september 1978.

26. Síðara ráðuneyti Ólafs Jóhannessonar

1. september 1978 – 15. október 1979

(Framsóknarflokkur, Alþýðubandalag og Alþýðuflokkur.)

  • Ólafur Jóhannesson forsætisráðherra. Hann fór einnig með Hagstofu Íslands. 
  • Benedikt Gröndal utanríkisráðherra.
  • Hjörleifur Guttormsson iðnaðarráðherra.
  •  Kjartan Jóhannsson sjávarútvegsráðherra.
  • Magnús H. Magnússon félagsmála- og heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra. 
  •  Ragnar Arnalds menntamála- og samgönguráðherra.
  •  Steingrímur Hermannsson dóms- og kirkjumála- og landbúnaðarráðherra.
  • Svavar Gestsson viðskiptaráðherra.
  • Tómas Árnason fjármálaráðherra.

Ráðuneytið fékk lausn 12. október 1979 en gegndi störfum til 15. október 1979.

 

27. Ráðuneyti Benedikts Gröndals

 15. október 1979 – 8. febrúar 1980

(Alþýðuflokkur.)

  • Benedikt Gröndal forsætisráðherra. Hann fór einnig með utanríkisráðuneytið.
  •  Bragi Sigurjónsson landbúnaðar- og iðnaðarráðherra.
  • Kjartan Jóhannsson sjávarútvegs- og viðskiptaráðherra.
  • Magnús H. Magnússon félagsmála-, heilbrigðis- og tryggingamála- og samgönguráðherra.
  •  Sighvatur Björgvinsson fjármálaráðherra. Hann fór einnig með Hagstofu Íslands. 
  •  Vilmundur Gylfason dóms- og kirkjumála- og menntamálaráðherra.

Ráðuneytið fékk lausn 4. desember 1979 en gegndi störfum til 8. febrúar 1980.

28. Ráðuneyti Gunnars Thoroddsens

8. febrúar 1980 – 26. maí 1983

(Ráðherrar úr Sjálfstæðisflokki, Framsóknarflokkur og Alþýðubandalag.)

  •  Gunnar Thoroddsen forsætisráðherra. Hann fór einnig með Hagstofu Íslands. 
  • Ólafur Jóhannesson utanríkisráðherra.
  • Friðjón Þórðarson dóms- og kirkjumálaráðherra.
  • Hjörleifur Guttormsson iðnaðarráðherra.
  • Ingvar Gíslason menntamálaráðherra.
  • Pálmi Jónsson landbúnaðarráðherra.
  • Ragnar Arnalds fjármálaráðherra.
  • Steingrímur Hermannsson sjávarútvegs- og samgönguráðherra.
  • Svavar Gestsson félagsmála- og heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra.
  • Tómas Árnason viðskiptaráðherra.

Ráðuneytið fékk lausn 28. apríl 1983 en gegndi störfum til 26. maí 1983.

29. Fyrsta ráðuneyti Steingríms Hermannssonar

 26. maí 1983 – 8. júlí 1987

(Framsóknarflokkur og Sjálfstæðisflokkur.)

  • Steingrímur Hermannsson forsætisráðherra.
  • Geir Hallgrímsson utanríkisráðherra. Hann fékk lausn frá embætti 24. janúar 1986.
  • Albert Guðmundsson fjármálaráðherra. Hann tók við öðru ráðuneyti 16. október 1985.
  • Alexander Stefánsson félagsmálaráðherra.
  • Halldór Ásgrímsson sjávarútvegsráðherra.
  • Jón Helgason landbúnaðar- og dóms- og kirkjumálaráðherra.
  • Matthías Bjarnason heilbrigðis- og tryggingamála- og samgönguráðherra. Hann tók við öðru ráðuneyti 16. október 1985.
  • Matthías Á. Mathiesen viðskiptaráðherra. Hann fór einnig með Hagstofu Íslands. Hann fékk lausn frá embætti 16. október 1985.
  • Ragnhildur Helgadóttir menntamálaráðherra. Hún tók við öðru ráðuneyti 16. október 1985.
  • Sverrir Hermannsson iðnaðarráðherra. Hann tók við öðru ráðuneyti 16. október 1985.

Breyting 16. október 1985:

  • Albert Guðmundsson iðnaðarráðherra. Hann fékk lausn frá embætti 24. mars 1987.
  • Matthías Bjarnason samgöngu- og viðskiptaráðherra.
  •  Ragnhildur Helgadóttir heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra.
  • Sverrir Hermannsson menntamálaráðherra.
  • Þorsteinn Pálsson fjármálaráðherra. Hann fór einnig með Hagstofu Íslands. Hann tók við nýju ráðuneyti 24. mars 1987.

Breyting 24. janúar 1986:

  • Matthías Á. Mathiesen utanríkisráðherra. 

Breyting 24. mars 1987:

  • Þorsteinn Pálsson fjármála- og iðnaðarráðherra. Hann fór einnig með Hagstofu Íslands.

Ráðuneytið fékk lausn 28. apríl 1987 en gegndi störfum til 8. júlí 1987.

 30. Ráðuneyti Þorsteins Pálssonar

 8. júlí 1987 – 28. september 1988

(Sjálfstæðisflokkur, Framsóknarflokkur og Alþýðuflokkur.)

  • Þorsteinn Pálsson forsætisráðherra.
  • Steingrímur Hermannsson utanríkisráðherra.
  • Birgir Ísl. Gunnarsson menntamálaráðherra.
  • Friðrik Sophusson iðnaðarráðherra.
  • Guðmundur Bjarnason heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra.
  • Halldór Ásgrímsson sjávarútvegsráðherra.
  • Jóhanna Sigurðardóttir félagsmálaráðherra.
  •  Jón Baldvin Hannibalsson fjármálaráðherra.
  •  Jón Helgason landbúnaðarráðherra.
  • Jón Sigurðsson dóms- og kirkjumála- og viðskiptaráðherra. Hann fór einnig með Hagstofu Íslands.
  • Matthías Á. Mathiesen samgönguráðherra.

Ráðuneytið fékk lausn 17. september 1988 en gegndi störfum til 28. september 1988.

31. Annað ráðuneyti Steingríms Hermannssonar

28. september 1988 – 10. september 1989

(Framsóknarflokkur, Alþýðuflokkur og Alþýðubandalag.)

  • Steingrímur Hermannsson forsætisráðherra. Hann fór einnig með Hagstofu Íslands.
  • Jón Baldvin Hannibalsson utanríkisráðherra.
  • Guðmundur Bjarnason heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra.
  • Halldór Ásgrímsson sjávarútvegs- og dóms- og kirkjumálaráðherra.
  • Jóhanna Sigurðardóttir félagsmálaráðherra.
  • Jón Sigurðsson viðskipta- og iðnaðarráðherra.
  • Ólafur Ragnar Grímsson fjármálaráðherra.
  • Steingrímur J. Sigfússon landbúnaðar- og samgönguráðherra.
  • Svavar Gestsson menntamálaráðherra.

Ráðuneytið fékk lausn 10. september 1989.

 32. Þriðja ráðuneyti Steingríms Hermannssonar

10. september 1989 – 30. apríl 1991

(Framsóknarflokkur, Alþýðuflokkur, Alþýðubandalag og Borgaraflokkur.)

  • Steingrímur Hermannsson forsætisráðherra. Hann fór einnig með Hagstofu Íslands frá 23. febrúar 1990.
  • Jón Baldvin Hannibalsson utanríkisráðherra.
  • Guðmundur Bjarnason heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra.
  • Halldór Ásgrímsson sjávarútvegsráðherra.
  • Jóhanna Sigurðardóttir félagsmálaráðherra.
  • Jón Sigurðsson viðskipta- og iðnaðarráðherra.
  • Júlíus Sólnes ráðherra Hagstofu Íslands. Hann tók við nýju ráðuneyti 23. febrúar 1990.
  • Ólafur Ragnar Grímsson fjármálaráðherra.
  • Óli Þ. Guðbjartsson dóms- og kirkjumálaráðherra.
  • Steingrímur J. Sigfússon landbúnaðar- og samgönguráðherra.
  • Svavar Gestsson menntamálaráðherra.

Breyting 23. febrúar 1990:

  • Júlíus Sólnes umhverfisráðherra.

Ráðuneytið fékk lausn 23. apríl 1991 en gegndi störfum til 30. apríl 1991.

33. Fyrsta ráðuneyti Davíðs Oddssonar

30. apríl 1991 – 23. apríl 1995

 (Sjálfstæðisflokkur og Alþýðuflokkur.)

  • Davíð Oddsson forsætisráðherra. Hann fór einnig með Hagstofu Íslands. 
  •  Jón Baldvin Hannibalsson utanríkisráðherra.
  •  Eiður Guðnason umhverfisráðherra. Hann fékk lausn frá embætti 14. júní 1993.
  •  Friðrik Sophusson fjármálaráðherra.
  •  Halldór Blöndal landbúnaðar- og samgönguráðherra.
  •  Jóhanna Sigurðardóttir félagsmálaráðherra. Hún fékk lausn frá embætti 24. júní 1994.
  •  Jón Sigurðsson viðskipta- og iðnaðarráðherra. Hann fékk lausn frá embætti 14. júní 1993.
  •  Ólafur G. Einarsson menntamálaráðherra.
  •  Sighvatur Björgvinsson heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra. Hann tók við öðru ráðuneyti 14. júní 1993.
  •  Þorsteinn Pálsson sjávarútvegs- og dóms- og kirkjumálaráðherra.

 Breyting 14. júní 1993:

  •  Guðmundur Árni Stefánsson heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra. Hann tók við öðru ráðuneyti 24. júní 1994.
  •  Sighvatur Björgvinsson viðskipta- og iðnaðarráðherra. Hann tók við nýju ráðuneyti 24. júní 1994.
  •  Össur Skarphéðinsson umhverfisráðherra. 

Breyting 24. júní 1994:

  •  Sighvatur Björgvinsson viðskipta- og iðnaðar- og heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra.
  •  Guðmundur Árni Stefánsson félagsmálaráðherra. Hann fékk lausn frá embætti 12. nóvember 1994.

 Breyting 12. nóvember 1994:

  •  Rannveig Guðmundsdóttir félagsmálaráðherra.

 Ráðuneytið fékk lausn 18. apríl 1995 en gegndi störfum til 23. apríl 1995.

 

34. Annað ráðuneyti Davíðs Oddssonar

23. apríl 1995 – 28. maí 1999

 (Sjálfstæðisflokkur og Framsóknarflokkur.)

  •  Davíð Oddsson forsætisráðherra. Hann fór einnig með Hagstofu Íslands.
  •  Halldór Ásgrímsson utanríkisráðherra.
  •  Björn Bjarnason menntamálaráðherra.
  •  Finnur Ingólfsson iðnaðar- og viðskiptaráðherra.
  •  Friðrik Sophusson fjármálaráðherra. Hann fékk lausn frá embætti 16. apríl 1998. 
  •  Guðmundur Bjarnason landbúnaðar- og umhverfisráðherra. Hann fékk lausn frá embætti 11. maí 1999 og tók þá Halldór Ásgrímsson við ráðuneytum hans.
  •  Halldór Blöndal samgönguráðherra.
  •  Ingibjörg Pálmadóttir heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra.
  •  Páll Pétursson félagsmálaráðherra.
  •  Þorsteinn Pálsson sjávarútvegs- og dóms- og kirkjumálaráðherra. Hann fékk lausn frá embætti 11. maí 1999 og tók þá Davíð Oddsson við ráðuneytum hans.

 Breyting 16. apríl 1998:

  • Geir H. Haarde fjármálaráðherra.

 Ráðuneytið fékk lausn 28. maí 1999.

35. Þriðja ráðuneyti Davíðs Oddssonar

28. maí 1999 – 23. maí 2003

 (Sjálfstæðisflokkur og Framsóknarflokkur.)

  • Davíð Oddsson forsætisráðherra. Hann fór einnig með Hagstofu Íslands.
  •  Halldór Ásgrímsson utanríkisráðherra.
  •  Árni M. Mathiesen sjávarútvegsráðherra.
  •  Björn Bjarnason menntamálaráðherra. Hann fékk lausn frá embætti 2. mars 2002.
  •  Finnur Ingólfsson iðnaðar- og viðskiptaráðherra. Hann fékk lausn frá embætti 31. desember 1999.
  •  Geir H. Haarde fjármálaráðherra.
  •  Guðni Ágústsson landbúnaðarráðherra.
  •  Ingibjörg Pálmadóttir heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra. Hún vék úr ráðherraembætti um sinn frá 23. janúar 2001 vegna veikinda og gegndi Halldór Ásgrímsson ráðherraembætti hennar þar til hún kom á ný til starfa. Hún fékk lausn frá embætti 14. apríl 2001.
  •  Páll Pétursson félagsmálaráðherra.
  •  Siv Friðleifsdóttir umhverfisráðherra.
  •  Sólveig Pétursdóttir dóms- og kirkjumálaráðherra.
  •  Sturla Böðvarsson samgönguráðherra.

 Breyting 31. desember 1999:

  •  Valgerður Sverrisdóttir iðnaðar- og viðskiptaráðherra.

 Breyting 14. apríl 2001:

  • Jón Kristjánsson heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra.

 Breyting 2. mars 2002:

  •  Tómas Ingi Olrich menntamálaráðherra.

 Ráðuneytið fékk lausn 23. maí 2003.

 

36. Fjórða ráðuneyti Davíðs Oddssonar

23. maí 2003 – 15. september 2004

(Sjálfstæðisflokkur og Framsóknarflokkur.)

  • Davíð Oddsson forsætisráðherra. Hann fór einnig með Hagstofu Íslands.
  •  Halldór Ásgrímsson utanríkisráðherra.
  •  Árni Magnússon félagsmálaráðherra.
  •  Árni M. Mathiesen sjávarútvegsráðherra.
  •  Björn Bjarnason dóms- og kirkjumálaráðherra.
  •  Geir H. Haarde fjármálaráðherra.
  •  Guðni Ágústsson landbúnaðarráðherra.
  •  Jón Kristjánsson heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra.
  •  Siv Friðleifsdóttir umhverfisráðherra.
  •  Sturla Böðvarsson samgönguráðherra.
  •  Tómas Ingi Olrich menntamálaráðherra. Hann fékk lausn frá embætti 31. desember 2003. 
  •  Valgerður Sverrisdóttir iðnaðar- og viðskiptaráðherra.

 Breyting 31. desember 2003:

  •  Þorgerður K. Gunnarsdóttir menntamálaráðherra.

 Ráðuneytið fékk lausn 15. september 2004.

37. Ráðuneyti Halldórs Ásgrímssonar

15. september 2004 – 15. júní 2006

(Framsóknarflokkur og Sjálfstæðisflokkur.)

  • Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra.
  •  Davíð Oddsson utanríkisráðherra. Hann fór einnig með Hagstofu Íslands. Hann fékk lausn frá embætti 27. september 2005.
  •  Árni Magnússon félagsmálaráðherra. Hann fékk lausn frá embætti 7. mars 2006. 
  •  Árni M. Mathiesen sjávarútvegsráðherra. Hann tók við öðru ráðuneyti 27. september 2005.
  •  Björn Bjarnason dóms- og kirkjumálaráðherra.
  •  Geir H. Haarde fjármálaráðherra. Hann tók við öðru ráðuneyti 27. september 2005.
  •  Guðni Ágústsson landbúnaðarráðherra.
  •  Jón Kristjánsson heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra. Hann tók við öðru ráðuneyti 7. mars 2006.
  •  Sigríður A. Þórðardóttir umhverfisráðherra.
  •  Sturla Böðvarsson samgönguráðherra.
  •  Valgerður Sverrisdóttir iðnaðar- og viðskiptaráðherra.
  •  Þorgerður K. Gunnarsdóttir menntamálaráðherra.

 Breyting 27. september 2005:

  •  Geir H. Haarde utanríkisráðherra.
  •  Árni M. Mathiesen fjármálaráðherra.
  •  Einar K. Guðfinnsson sjávarútvegsráðherra.

Breyting 7. mars 2006:

  •  Jón Kristjánsson félagsmálaráðherra.
  •  Siv Friðleifsdóttir heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra.

 Ráðuneytið fékk lausn 15. júní 2006.

 

38. Fyrra ráðuneyti Geirs H. Haarde

15. júní 2006 – 24. maí 2007

 (Sjálfstæðisflokkur og Framsóknarflokkur.)

  • Geir H. Haarde forsætisráðherra. Hann fór einnig með Hagstofu Íslands.
  •  Valgerður Sverrisdóttir utanríkisráðherra.
  •  Árni M. Mathiesen fjármálaráðherra.
  •  Björn Bjarnason dóms- og kirkjumálaráðherra.
  •  Einar K. Guðfinnsson sjávarútvegsráðherra.
  •  Guðni Ágústsson landbúnaðarráðherra.
  •  Jón Sigurðsson iðnaðar- og viðskiptaráðherra.
  •  Jónína Bjartmarz umhverfisráðherra.
  •  Magnús Stefánsson félagsmálaráðherra.
  •  Siv Friðleifsdóttir heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra.
  •  Sturla Böðvarsson samgönguráðherra.
  •  Þorgerður K. Gunnarsdóttir menntamálaráðherra.

 Ráðuneytið fékk lausn 24. maí 2007.

 

39. Síðara ráðuneyti Geirs H. Haarde

24. maí 2007 – 1. febrúar 2009

 (Sjálfstæðisflokkur og Samfylking.)

  • Geir H. Haarde forsætisráðherra. Hann fór einnig með Hagstofu Íslands til 1. janúar 2008 er hún taldist ekki lengur til ráðuneyta.
  •  Ingibjörg Sólrún Gísladóttir utanríkisráðherra.
  •  Árni M. Mathiesen fjármálaráðherra.
  •  Björgvin G. Sigurðsson viðskiptaráðherra.
  •  Björn Bjarnason dóms- og kirkjumálaráðherra.
  •  Einar K. Guðfinnsson sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.
  •  Guðlaugur Þór Þórðarson heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra (heilbrigðisráðherra frá 1. janúar 2008).
  •  Jóhanna Sigurðardóttir félagsmálaráðherra (félags- og tryggingamálaráðherra frá 1. janúar 2008).
  •  Kristján L. Möller samgönguráðherra.
  •  Þorgerður K. Gunnarsdóttir menntamálaráðherra.
  •  Þórunn Sveinbjarnardóttir umhverfisráðherra.
  •  Össur Skarphéðinsson iðnaðarráðherra.

 Ráðuneytið fékk lausn 26. janúar 2009 en gegndi störfum til 1. febrúar 2009.

 

40. Fyrra ráðuneyti Jóhönnu Sigurðardóttur

1. febrúar 2009 – 10. maí 2009

 (Samfylking, Vinstri hreyfingin – grænt framboð og ráðherrar utan flokka.)

  • Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra.
  •  Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra og sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.
  •  Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra og iðnaðarráðherra.
  •  Kristján L. Möller samgönguráðherra.
  •  Ásta R. Jóhannesdóttir félags- og tryggingamálaráðherra.
  •  Ögmundur Jónasson heilbrigðisráðherra.
  •  Kolbrún Halldórsdóttir umhverfisráðherra og samstarfsráðherra Norðurlanda.
  •  Katrín Jakobsdóttir menntamálaráðherra.
  •  Gylfi Magnússon viðskiptaráðherra.
  •  Ragna Árnadóttir dóms- og kirkjumálaráðherra.

 Ráðuneytið fékk lausn 10. maí 2009.

 

41. Síðara ráðuneyti Jóhönnu Sigurðardóttur

10. maí 2009 – 23. maí 2013

 (Samfylkingin, Vinstri hreyfingin – grænt framboð og ráðherrar utan flokka.)

10. maí 2009 – 2. september 2010

  • Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra.
  • Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra.
  • Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra.
  • Árni Páll Árnason félags- og tryggingamálaráðherra.  Hann tók við öðru ráðuneyti 2. september 2010.
  • Gylfi Magnússon viðskiptaráðherra (efnahags- og viðskiptaráðherra frá 1. október 2009). Hann fékk lausn frá embætti 2. september 2010.
  • Jón Bjarnason sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.
  • Katrín Jakobsdóttir menntamálaráðherra (mennta- og menningarmálaráðherra frá 1. október 2009).
  • Katrín Júlíusdóttir iðnaðarráðherra.
  • Kristján L. Möller samgönguráðherra (samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra frá 1. október 2009). Hann fékk lausn frá embætti 2. september 2010.
  • Ragna Árnadóttir dóms- og kirkjumálaráðherra (dómsmála- og mannréttindaráðherra frá 1. október 2009).  Hún fékk lausn frá embætti 2. september 2010.
  • Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra.
  • Ögmundur Jónasson heilbrigðisráðherra.  Hann fékk lausn frá embætti 1. október 2009.

Breyting 1. október 2009:

  • Álfheiður Ingadóttir heilbrigðisráðherra.  Hún fékk lausn frá embætti 2. september 2010.

2. september 2010 – 31. desember 2011

  • Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra.
  • Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra. Hann tók við öðrum ráðuneytum 31. desember 2011.
  • Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra.
  • Árni Páll Árnason efnahags- og viðskiptaráðherra.  Hann fékk lausn frá embætti 31. desember 2011.
  • Guðbjartur Hannesson félags- og tryggingamálaráðherra og heilbrigðisráðherra. Velferðarráðherra frá 1. janúar 2011.
  • Jón Bjarnason sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.  Hann fékk lausn frá embætti 31. desember 2011.
  • Katrín Jakobsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra. Hún var í fæðingarorlofi frá 31. maí 2011. Svandís Svavarsdóttir gegndi ráðherraembætti hennar á meðan til 31. október 2011.
  • Katrín Júlíusdóttir iðnaðarráðherra.
  • Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra.
  • Ögmundur Jónasson dómsmála- og mannréttindaráðherra og samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra. Innanríkisráðherra frá 1. janúar 2011.

31. desember 2011 – 1. september 2012

  • Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra.
  • Steingrímur J. Sigfússon efnahags- og viðskiptaráðherra og sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.
  • Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra.
  • Guðbjartur Hannesson velferðarráðherra.
  • Katrín Jakobsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra.
  • Katrín Júlíusdóttir iðnaðarráðherra. Hún var í fæðingarorlofi frá 24. febrúar 2012. Oddný G. Harðardóttir gegndi ráðherraembætti hennar frá þeim tíma til 6. júlí 2012 og Steingrímur J. Sigfússon frá 6. júlí til 1. september 2012.
  • Oddný G. Harðardóttir fjármálaráðherra.
  • Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra.
  • Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra

1. september 2012 – 23. maí 2013

  • Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra.
  • Steingrímur J. Sigfússon atvinnuvega- og nýsköpunarráðherra.
  • Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra.
  • Guðbjartur Hannesson velferðarráðherra.
  • Katrín Jakobsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra.
  • Oddný G. Harðardóttir fjármála- og efnahagsráðherra. Hún fékk lausn frá embætti 1. október 2012.
  • Svandís Svavarsdóttir umhverfis- og auðlindaráðherra.
  • Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra.

Breyting 1. október 2012:

  • Katrín Júlíusdóttir fjármála- og efnahagsráðherra.

Ráðuneytið fékk lausn 28. apríl 2013 en gegndi störfum til 23. maí 2013.

42. Ráðuneyti Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar

23. maí 2013– 7. apríl 2016


(Framsóknarflokkur og Sjálfstæðisflokkur.)

  • Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra. Hann tók við hluta þeirra stjórnarmálefna (dómsmál) sem heyra undir innanríkisráðuneyti 26. ágúst 2014 og fór með þau málefni til 4. desember 2014.
  • Bjarni Benediktsson fjármála- og efnahagsráðherra.
  • Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra.
  • Eygló Harðardóttir félags- og húsnæðismálaráðherra.
  • Hanna Birna Kristjánsdóttir innanríkisráðherra. Málefni dómstóla o.fl. voru færð undir forsætisráðherra 26. ágúst 2014. Hún fékk lausn frá embætti 4. desember 2014.
  • Illugi Gunnarsson mennta- og menningarmálaráðherra.
  • Kristján Þór Júlíusson heilbrigðisráðherra.
  • Ragnheiður E. Árnadóttir iðnaðar- og viðskiptaráðherra.
  • Sigurður Ingi Jóhannsson sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra og umhverfis- og auðlindaráðherra. Hann fékk lausn frá embætti umhverfis- og auðlindaráðherra 31. desember 2014.

Breyting 26. ágúst 2014:

  • Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, forsætisráðherra og dómsmálaráðherra 26. ágúst 2014 til 4. desember 2014.

Breyting 4. desember 2014:

  • Ólöf Nordal innanríkisráðherra.

Breyting 31. desember 2014:

  • Sigrún Magnúsdóttir umhverfis- og auðlindaráðherra.

 Ráðuneytið fékk lausn 7. apríl 2016

43. Ráðuneyti Sigurðar Inga Jóhannssonar

7. apríl 2016–11. janúar 2017.

(Framsóknarflokkur og Sjálfstæðisflokkur.)

  • Sigurður Ingi Jóhannsson forsætisráðherra.
  • Bjarni Benediktsson fjármála- og efnahagsráðherra.
  • Kristján Þór Júlíusson heilbrigðisráðherra.
  • Illugi Gunnarsson mennta- og menningarmálaráðherra.
  • Ragnheiður Elín Árnadóttir iðnaðar- og viðskiptaráðherra.
  • Eygló Harðardóttir félags- og húsnæðismálaráðherra.
  • Gunnar Bragi Sveinsson sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.
  • Ólöf Nordal innanríkisráðherra.
  • Sigrún Magnúsdóttir umhverfis- og auðlindaráðherra.
  • Lilja Alfreðsdóttir utanríkisráðherra.
Ráðuneytið fékk lausn 30. október 2016 en gegndi störfum til 11. janúar 2017.

44. Ráðuneyti Bjarna Benediktssonar

11. janúar 2017

(Sjálfstæðisflokkur, Viðreisn og Björt framtíð)

  • Bjarni Benediktsson forsætisráðherra.
  • Benedikt Jóhannesson fjármála- og efnahagsráðherra.
  • Óttarr Proppé heilbrigðisráðherra.
  • Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.
  • Kristján Þór Júlíusson mennta- og menningarmálaráðherra.
  • Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra.
  • Jón Gunnarsson samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra.
  • Björt Ólafsdóttir umhverfis- og auðlindaráðherra.
  • Sigríður Á. Andersen dómsmálaráðherra.
  • Þorsteinn Víglundsson félags- og jafnréttismálaráðherra.
  • Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunar­ráðherra.
Ráðuneytið fékk lausn 29. október 2017 en gegndi störfum til 30. nóvember 2017.

45. Fyrsta ráðuneyti Katrínar Jakobsdóttur

30. nóvember 2017

(Framsóknarflokkur, Sjálfstæðisflokkur og Vinstrihreyfingin – grænt framboð)

  • Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra.
  • Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra.
  • Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra.
  • Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.
  • Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra.
  • Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra

    (utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra frá 1. janúar 2020).

  • Sigríður Á. Andersen dómsmálaráðherra. Hún fékk lausn frá embætti 14. mars 2019.

  • Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra.
  • Lilja Dögg Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra.
  • Ásmundur Einar Daðason, félags- og jafnréttismálaráðherra (félags- og barnamálaráðherra frá 1. janúar 2019).
  • Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra.

Breyting 14. mars 2019:

Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir dómsmálaráðherra 14. mars 2019 til 6. september 2019.

Breyting 6. september 2019:

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir dómsmálaráðherra.

46.  Annað ráðuneyti Katrínar Jakobsdóttur

28. nóvember 2021

(Framsóknarflokkur, Sjálfstæðisflokkur og Vinstrihreyfingin – grænt framboð)

  • Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra.
  • Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra.
  • Sigurður Ingi Jóhannsson innviðaráðherra.
  • Svandís Svavarsdóttir, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.
  • Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra.
  • Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir, utanríkisráðherra.
  • Lilja Alfreðsdóttir, menningar- og viðskiptaráðherra.
  • Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barnamálaráðherra.
  • Guðmundur Ingi Guðbrandsson, félags- og vinnumarkaðsráðherra, ráðherra norrænna samstarfsmála.
  • Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra.
  • Jón Gunnarsson innanríkisráðherra, dómsmálaráðherra frá 1. febrúar 2022.
  • Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra.