Fundur sameiginlegu EES-nefndarinnar 5. júlí 2023

EES mál (2306183)
Utanríkismálanefnd

Nefndarfundir

Dagsetning Fundur Bókun
30.06.2023 44. fundur utanríkismálanefndar Fundur sameiginlegu EES-nefndarinnar 5. júlí 2023
Á fund nefndarinnar komu Erna Sigríður Hallgrímsdóttir frá utanríkisráðuneyti og Sigríður Rafnar Pétursdóttir frá fjármála- og efnahagsráðuneyti. Gestirnir tengdust fundinum með fjarfundarbúnaði.

Gestirnir kynntu þær gerðir sem til stendur að taka upp í EES-samninginn á fundi sameiginlegu EES-nefndarinnar 5. júlí nk. og svöruðu spurningum nefndarmanna.