Framkvæmd þingsályktunarinnar
Ferill 165. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
152. löggjafarþing 2021–2022.
Þingskjal 191 — 165. mál.
Síðari umræða.
Nefndarálit
um tillögu til þingsályktunar um staðfestingu ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 388/2021 um breytingu á IX. viðauka (Fjármálaþjónusta) við EES-samninginn.
Frá utanríkismálanefnd.
Nefndin hefur fjallað um málið.
Með tillögunni er leitað heimildar Alþingis til að staðfesta ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 388/2021 frá 10. desember 2021 um breytingu á IX. viðauka (Fjármálaþjónusta) við EES-samninginn frá 2. maí 1992 og fella inn í samninginn reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2021/168 frá 10. febrúar 2021 um breytingu á reglugerð (ESB) 2016/1011 að því er varðar undanþágu fyrir tilteknar viðmiðanir fyrir stundargengi gjaldmiðla þriðju landa og tilnefningu viðmiðana í stað tiltekinna viðmiðana sem verður hætt með og um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 648/2012, framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2021/1847 frá 14. október 2021 um tilgreiningu á lögboðinni viðmiðun til að taka við af tilteknum útgáfum af CHF LIBOR-vöxtum og framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2021/1848 frá 2021/1848 frá 21. október 2021 um tilgreiningu á viðmiðun til að taka við af millibankadagvöxtum í evrum.
Framsetning tillögunnar telst að mati nefndarinnar í samræmi við 7. gr. reglna um þinglega meðferð EES-mála.
Nefndin leggur til að tillagan verði samþykkt.
Þorgerður K. Gunnarsdóttir var fjarverandi við afgreiðslu málsins en skrifar undir álit þetta í samræmi við 2. mgr. 29. gr. þingskapa.
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson var fjarverandi við afgreiðslu málsins.
Gísli Rafn Ólafsson, áheyrnarfulltrúi í nefndinni, er samþykkur áliti þessu.
Alþingi, 14. desember 2021.
Bjarni Jónsson, form. |
Njáll Trausti Friðbertsson, frsm. | Birgir Þórarinsson. | |
Diljá Mist Einarsdóttir. | Logi Einarsson. | Jakob Frímann Magnússon. | |
Jóhann Friðrik Friðriksson. | Þorgerður K. Gunnarsdóttir. |