Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 564. máls.

Þingskjal 981  —  564. mál.



Tillaga til þingsályktunar

um staðfestingu samnings milli Íslands og Færeyja um fiskveiðar innan íslenskrar og færeyskrar lögsögu á árinu 2014.

(Lögð fyrir Alþingi á 143. löggjafarþingi 2013–2014.)




    Alþingi ályktar að heimila ríkisstjórninni að staðfesta fyrir Íslands hönd samning milli Íslands og Færeyja um fiskveiðar innan íslenskrar og færeyskrar lögsögu á árinu 2014 sem gengið var frá með bréfaskiptum í Þórshöfn og Reykjavík 7. og 9. apríl 2014.

Athugasemdir við þingsályktunartillögu þessa.

    Með þingsályktunartillögu þessari er leitað heimildar Alþingis til staðfestingar á samningi milli Íslands og Færeyja um fiskveiðar innan íslenskrar og færeyskrar lögsögu á árinu 2014 sem gengið var frá með bréfaskiptum í Þórshöfn og Reykjavík 7. og 9. apríl 2014. Samningurinn er prentaður sem fylgiskjal með tillögu þessari.
    Samningur þessi kveður á um heimildir aðila til veiða á uppsjávarfiski í lögsögu hvor annars á árinu 2014. Hann er óbreyttur frá fyrri árum að öðru leyti en því að ekki er kveðið á um heimildir færeyskra skipa til loðnuveiða í íslenskri lögsögu á vertíðinni 2014/2015 heldur er tekið fram að ákvörðun þar að lútandi verði tekin á fundi aðila síðar á árinu 2014. Þó er kveðið á um að færeyskum skipum sé heimilt á loðnuvertíðinni 2014/2015 að veiða allt að 10 þús. lestir af loðnu innan íslenskrar lögsögu úr veiðiheimildum sem fengnar eru með samningum færeyskra og grænlenskra stjórnvalda.
    Samningurinn gerir ráð fyrir gagnkvæmri heimild skipa hvors aðila til veiða á kolmunna og norsk-íslenskri síld innan lögsögu hins á árinu 2014.
    Íslenskum skipum eru heimilar veiðar á allt að 1.300 lestum af makríl og 2.000 lestum af síld annarri en norsk-íslenskri innan færeyskrar lögsögu á árinu 2014.
    Samningurinn tók gildi til bráðabirgða 9. apríl 2014 og mun öðlast endanlegt gildi þegar tilkynnt hefur verið um að stjórnskipulegum skilyrðum hvors lands um sig hafi verið fullnægt.
    Áður en samningur þessi var gerður var á grundvelli samnings landanna frá 1976 um heimildir Færeyinga til veiða í lögsögu Íslands ákveðið að færeyskum skipum væri heimilt að veiða 5.600 lestir af botnfiski við Ísland á árinu 2014. Heildarafli þorsks verður þó ekki meiri en 1.375 lestir, heildarafli keilu ekki meiri en 750 lestir og engar veiðar eru heimilaðar á lúðu eða grálúðu.

Fylgiskjal.


SAMNINGUR
milli Íslands og Færeyja
um fiskveiðar innan íslenskrar og færeyskrar lögsögu á árinu 2014.


a. Bréf lögmanns Færeyja til utanríkisráðherra Íslands.


Tórshavn, 7. apríl 2014


Harra Uttanríkisráðharri,

    Eg loyvi mær at vísa til samráðingar millum føroyska og íslendska fiskimálaráðharrarnar um fiskiveiði í føroyskum og íslendskum sjógvi í 2014.
    Eg havi skilt, at semja er um fylgjandi:

„Semja
millum Ísland og Føroyar
um fiskiveiði í íslendskum og føroyskum sjógvi í 2014.


1. gr.

    Á fundi millum Føroyar og Ísland, sum verður ikki seinni enn i desember 2014, fara partarnir at umrøða og taka avgerð um veiðiheimildirnar hjá føroyskum skipum at fiska lodnu í íslendskum búskaparøki vertíðina 2014/2015.
    Føroyskum skipum er í lodnuvertíðini 2014/2015 loyvt at veiða upp til 10.000 tons av lodnu í hvørji vertíð í íslendskum búskaparøki við veiðiheimildum, sum eru fíngnar við samráðingum millum Føroyar og Grønland.

2. gr.

    Føroyskum skipum er loyvt at veiða svartkjaft og várgýtandi norðhavssild í íslendskum búskaparøki í 2014. Eftir samráðingar við landsstýrið í Føroyum kunnu íslendskir myndugleikar áseta mest loyvda skipatal, sum kunnu veiða samstundis á leiðini.

3. gr.

    Íslendskum skipum er loyvt at veiða svartkjaft og várgýtandi norðhavssild í føroyskum sjógvi í 2014. Tó kunnu ikki fleiri enn 12 skip verða á svartkjaftaveiðu samstundis í føroyskum sjógvi. Føroyar skila sær rætt til at avmarka talið av íslendskum svartkjaftaskipum, um tað gerst ov trongt á fiskileiðunum. Eftir samráðingar við íslendskar myndugleikar kann Føroya landsstýri áseta mest loyvda tal av skipum, sum kunnu veiða samstundis eftir norðhavssild.

4. gr.

    Íslendskum skipum er loyvt at veiða upp til 1.300 tons av makreli í føroyskum sjógvi í 2014 og at veiða upp til 2.000 tons av sild úr øðrum sildastovni enn várgýtandi norðhavssild.

5. gr.

    Føroysk skip, sum veiða sambært hesi avtalu í íslendskum búskaparøki, skulu fylgja somu veiðireglum, sum galda fyri íslendsk skip um reiðskap og fiskileiðir. Íslendsk skip, sum veiða sambært hesi avtalu í føroyskum sjógvi, skulu fylgja somu veiðireglum, sum galda fyri føroysk skip um reiðskap og fiskileiðir. Skipum, ið veiða eftir svartkjafti, er ikki loyvt at hava reiðskap til botnfiskaveiði um borð.

6. gr.

    Partarnir skulu fráboða ein lista yvir tey fiskifør, sum ætla at veiða á økjunum hjá hvørjum øðrum. Bert tey fiskifør, sum eru á hesum lista, hava loyvi at veiða á økjunum. Áðrenn fiskiskapurin byrjar, skulu avvarðandi myndugleikar hava boð um navn á skipi saman við øðrum upplýsingum av týðningi. Skipið skal boða frá, tá tað kemur á veiðiøkið, uppgeva knøttstøðu og veiðinøgd, sum er veidd, áðrenn komu á økið, og síðani uppgeva knøttstøðu og veiði hvønn dag. Tá skip fer av veiðiøkinum skal mett veiða verða givin upp. Nágreiniligari ásetingar um fráboðanir verða ásettar í kunngerð.“

    Um tygum staðfesta, at tað, ið stendur omanfyri, er i samsvar við fatan tygara, loyvi eg mær at skjóta upp, at henda avtala fær gildi fyribils, tá svarbræv tygara hesum viðvíkjandi er dagsett og endaliga, tá boðað er frá, at stýrisskipanarligu krøvini hjá hvørjum landi eru uppfylt.

    Við hávirðing,
    Kaj Leo Holm Johannessen
    løgmaður


b. Svarbréf utanríkisráðherra Íslands.


    Hr. løgmaður
    Kaj Leo Holm Johannessen
    Føroya Landsstýri
    Torshavn

Reykjavík, 9. apríl 2014


    Hr. løgmaður.

    Ég leyfi mér að vísa til bréfs yðar, dags. 7. apríl, sem er svohljóðandi:

    „Ég leyfi mér að vísa til samtala milli sjávarútvegsráðherra Færeyja og Íslands um fiskveiðar innan færeyskrar og íslenskrar lögsögu á árinu 2014.
    Mér skilst að samkomulag hafi orðið um eftirfarandi samning:

„Samningur
milli Íslands og Færeyja
um fiskveiðar innan íslenskrar og færeyskrar lögsögu á árinu 2014.


1. gr.

    Á fundi Færeyja og Íslands, sem verður haldinn ekki síðar en í desember 2014, munu aðilar ræða um og taka ákvörðun um heimildir færeyskra skipa til að veiða loðnu innan efnahagslögsögu Íslands á vertíðinni 2014/2015.
    Færeyskum skipum er heimilt á loðnuvertíðinni 2014/2015 að veiða allt að 10 þús. lestir af loðnu innan efnahagslögsögu Íslands úr veiðiheimildum sem fengnar eru með samningum færeyskra og grænlenskra stjórnvalda.

2. gr.

    Færeyskum skipum eru heimilar veiðar á kolmunna og norsk-íslenskri síld innan efnahagslögsögu Íslands á árinu 2014. Að höfðu samráði við landstjórn Færeyja geta íslensk stjórnvöld ákveðið að veiðarnar stundi aðeins tiltekinn fjöldi skipa samtímis.

3. gr.

    Íslenskum skipum eru heimilar veiðar á kolmunna og norsk-íslenskri síld innan fiskveiðilögsögu Færeyja á árinu 2014. Eigi skulu fleiri en 12 skip stunda veiðar á kolmunna samtímis innan lögsögu Færeyja. Færeyjar áskilja sér rétt til að takmarka fjölda skipanna enn frekar til að forðast öngþveiti á miðunum. Að höfðu samráði við íslensk stjórnvöld getur landstjórn Færeyja ákveðið að veiðar á norsk-íslenskri síld stundi aðeins tiltekinn fjöldi skipa samtímis.

4. gr.

    Íslenskum skipum eru heimilar veiðar á allt að 1.300 lestum af makríl innan fiskveiðilögsögu Færeyja á árinu 2014 og veiðar á allt að 2.000 lestum af síld úr síldarstofnum öðrum en þeim norsk-íslenska.

5. gr.

    Færeysk skip, sem stunda veiðar samkvæmt samningi þessum innan íslenskrar lögsögu, skulu hlíta sömu reglum og gilda um veiðar íslenskra skipa, þar á meðal reglum um veiðarfæri og veiðisvæði. Íslensk skip, sem stunda veiðar samkvæmt samningi þessum innan færeyskrar lögsögu, skulu hlíta sömu reglum og gilda um veiðar færeyskra skipa, þar á meðal reglum um veiðarfæri og veiðisvæði. Skipum við kolmunnaveiðar er óheimilt að hafa um borð veiðarfæri sem nota má til botnfiskveiða.

6. gr.

    Hvor aðili um sig skal tilkynna lista með þeim veiðiskipum sem hyggjast stunda veiðar samkvæmt samningi þessum innan lögsögu hins aðilans. Skip sem eru á listum þessum hafa ein rétt til veiða innan lögsögu þess aðila. Áður en veiðar hefjast skal tilkynna viðkomandi yfirvöldum um nafn skips og veita aðrar upplýsingar er máli skipta. Veiðiskip skal tilkynna um komu inn í lögsögu og staðarákvörðun og gefa upplýsingar um afla sem veiddur hefur verið fyrir komu inn í lögsöguna og síðan daglega tilkynna um staðarákvörðun og afla. Þegar farið er út úr lögsögu skal tilkynna um áætlað aflamagn. Nánar er kveðið á um tilkynningar þessar í reglugerð.“

    Ef þér staðfestið að ofangreint sé skilningur yðar leyfi ég mér að leggja til að samningur þessi taki gildi til bráðabirgða þegar svarbréf yðar þar um er dagsett og endanlega þegar tilkynnt hefur verið um að stjórnskipulegum skilyrðum hvors lands um sig hafi verið endanlega fullnægt.“

    Ég leyfi mér að staðfesta að ofangreint er skilningur minn og tekur samningurinn gildi til bráðabirgða í dag og endanlega þegar tilkynnt hefur verið um að stjórnskipulegum skilyrðum hvors lands um sig hafi verið endanlega fullnægt.

    Virðingarfyllst,
    Sigurður Ingi Jóhannsson
    starfandi utanríkisráðherra