Ferill 430. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


145. löggjafarþing 2015–2016.
Þingskjal 838  —  430. mál.

Síðari umræða.


Nefndarálit


um tillögu til þingsályktunar um staðfestingu ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar
nr. 115/2015 um breytingu á XIII. viðauka (Flutningastarfsemi)
og XIX. viðauka (Neytendavernd) við EES-samninginn.

Frá utanríkismálanefnd.


    Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund Aðalheiði I. Þorsteinsdóttur frá utanríkisráðuneyti og Björn Frey Björnsson frá innanríkisráðuneyti.
    Með tillögunni er leitað heimildar Alþingis til að staðfesta ákvörðun sameiginlegu EES- nefndarinnar nr. 115/2015, frá 30. apríl 2015, um breytingu á XIII. viðauka (Flutningastarfsemi) og XIX. viðauka (Neytendavernd) við EES-samninginn frá 2. maí 1992, og til að fella inn í samninginn reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 181/2011 frá 16. febrúar 2011 um réttindi farþega í hópbifreiðum og um breytingu á reglugerð (EB) nr. 2006/2004. Sex mánaða frestur samkvæmt EES-samningnum til að aflétta stjórnskipulegum fyrirvara var veittur til 30. október 2015. Framsetning tillögunnar telst að mati nefndarinnar í samræmi við 4. gr. reglna um þinglega meðferð EES-mála.
    Reglugerð (ESB) nr. 181/2011 er ætlað að bæta réttindi og neytendavernd farþega á landi til jafns við réttindi og neytendavernd flugfarþega og farþega á sjó. Flest ákvæði reglugerðarinnar taka eingöngu til áætlunarferða sem eru a.m.k. 250 km. Þó eiga sum ákvæði gerðarinnar einnig við um styttri ferðir.
    Reglugerðinni er ætlað að tryggja að farþegar á ferðum sem eru a.m.k. 250 km fái fullnægjandi aðstoð, svo sem hressingu, mat eða gistingu, ef nánar tiltekin töf verður á ferðum. Þá er tryggð endurgreiðsla eða endurbókun vegna yfirbókunar ferðar eða seinkunar umfram 120 mínútur. Skaðabætur skulu jafnframt tryggðar vegna tafar umfram 120 mínútur, ef ferð fellur niður eða ef endurgreiðsla eða endurbókun hefur ekki verið boðin. Þá öðlast farþegar rétt á upplýsingum þegar ferðum er frestað eða þær felldar niður og aðstoð í formi ferða og gistingar ef slys ber að höndum. Þá kveður reglugerðin á um gjaldfrjálsa aðstoð til handa fötluðum og hreyfihömluðum á hópbifreiðastöðvum og um borð í hópbifreiðum. Ferðir aðstoðarfólks þeirra skulu jafnframt vera þeim að kostnaðarlausu.
    Þau ákvæði gerðarinnar sem eiga við um akstur hópbifreiða á styttri jafnt sem lengri leiðum leggja bann við mismunun farþega hvað varðar fargjöld og aðgengi, t.d. vegna fötlunar, hreyfihömlunar eða þjóðernis. Þá eru settar lágmarksreglur um upplýsingagjöf til farþega, til að mynda um réttindi þeirra og ferðaupplýsingar og um sjálfstæðar stofnanir í hverju ríki sem annast skulu framfylgd reglugerðarinnar.
    Loks er kveðið á um skyldubundna þjálfun ökumanna við flutning á hreyfihömluðum farþegum á öruggan hátt. Ísland hefur heimild til að veita frest til innleiðingar þessa ákvæðis til 1. mars 2018. Ísland hefur auk þess heimild til að veita tímabundna undanþágu til 1. mars 2017 frá vissum ákvæðum reglugerðarinnar sem snúa að ferðum hópbifreiða innan lands.
    Gert er ráð fyrir að innanríkisráðherra leggi fram á yfirstandandi þingi frumvarp til nýrra laga um almenningssamgöngur þar sem lagastoð yrði fyrir reglugerðinni. Reglugerðin kann að auka kostnað rekstraraðila sem gera út hópbifreiðar til áætlunarferða. Þá mun Samgöngustofa þurfa kerfi til að taka á móti kvörtunum vegna ferða í hópbifreiðum, svipað því sem nú er til staðar og snýr að flugfarþegum.
    Nefndin leggur til að tillagan verði samþykkt.
    Elín Hirst og Karl Garðarsson voru fjarverandi við afgreiðslu málsins.

Alþingi, 16. febrúar 2016.

Hanna Birna Kristjánsdóttir,
form., frsm.
Frosti Sigurjónsson. Óttarr Proppé.
Silja Dögg Gunnarsdóttir. Steinunn Þóra Árnadóttir. Vilhjálmur Bjarnason.
Össur Skarphéðinsson.