Ferill 77. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


145. löggjafarþing 2015–2016.
Þingskjal 960  —  77. mál.

Síðari umræða.


Nefndarálit


um tillögu til þingsályktunar um að styrkja samstarf við Grænland og Færeyjar
um sjávarútvegsmál.

Frá utanríkismálanefnd.


    Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund Unni Brá Konráðsdóttur, formann Íslandsdeildar Vestnorræna ráðsins, Ingu Dóru Markussen, framkvæmdastjóra Vestnorræna ráðsins, Vilborgu Ásu Guðjónsdóttur, alþjóðaritara Íslandsdeildar Vestnorræna ráðsins, Högna S. Kristjánsson, Bergþór Magnússon og Ragnheiði Harðardóttur frá utanríkisráðuneyti, Sigurberg Björnsson frá innanríkisráðuneyti og Sigurgeir Þorgeirsson frá atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti.
    Með tillögunni er lagt til að Alþingi skori á ríkisstjórnina að styrkja samstarf við landsstjórnir Færeyja og Grænlands um sjávarútvegsmál til að nýta til fulls þá sérstöðu sem Vestur-Norðurlönd hafa sem sjávarútvegssvæði. Kannað verði hvernig löndin geti aukið samstarf sitt á sviði sjávarútvegsmála og er lagt til að ríkisstjórnir landanna leggi niðurstöðurnar fram í sameiginlegri greiningu sem send verði til Vestnorræna ráðsins.
    Í greinargerð með tillögunni kemur fram að hún sé lögð fram á grundvelli ályktunar Vestnorræna ráðsins nr. 3/2015 sem samþykkt var á ársfundi ráðsins í Runavík í Færeyjum 12. ágúst 2015. Þar segir einnig að Ísland, Grænland og Færeyjar séu í margvíslegu samstarfi á sviði sjávarútvegsmála, bæði á vegum opinberra aðila og atvinnulífs. Löndin ráði yfir einu stærsta fiskveiðisvæði heims en hafi ekki sameiginleg landfræðipólitísk markmið um hvernig þau nýti auðlindir hafsins. Vestnorræna ráðið telur að þessi þrjú lönd geti styrkt efnahag sinn til lengri tíma litið með því að hefja aukið samstarf, þar á meðal á sviði sjávarútvegs.
    Á fundi nefndarinnar kom fram að Vestnorrænu löndin þrjú vinna nú þegar á mörgum sviðum sem varða sjávarútveg, til að mynda á sviði hafrannsókna sem auka þekkingu þjóðanna. Vilji er hjá íslenskum stjórnvöldum til að auka og styrkja samstarf milli landanna á þessu sviði og telur nefndin að tillaga þessi sé stórt skref í þá átt enda verði þá kannað á hvaða sviðum greinarinnar samstarf sé ákjósanlegast og hagkvæmast. Vestnorrænu löndin eiga það sameiginlegt að hafa mikilla hagsmuna að gæta á sviði sjávarútvegs og sameiginleg stefna og aukið samstarf um þessi mál styrkir samningsstöðu þeirra við önnur lönd og svæði.
    Leggur nefndin til að tillagan verði samþykkt óbreytt.
    Elín Hirst var fjarverandi við afgreiðslu málsins. Frosti Sigurjónsson var fjarverandi við afgreiðslu málsins en ritar undir álit þetta samkvæmt heimild í 4. mgr. 18. gr. starfsreglna fyrir fastanefndir Alþingis.

Alþingi, 3. mars 2016.

Hanna Birna Kristjánsdóttir,
form., frsm.
Karl Garðarsson. Vilhjálmur Bjarnason.
Frosti Sigurjónsson. Óttarr Proppé. Silja Dögg Gunnarsdóttir.
Steinunn Þóra Árnadóttir. Valgerður Bjarnadóttir.