Ferill 684. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


145. löggjafarþing 2015–2016.
Þingskjal 1309  —  684. mál.

Síðari umræða.


Nefndarálit


um tillögu til þingsályktunar um staðfestingu ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 230/2015 um breytingu á XX. viðauka (Umhverfi) við EES-samninginn.

Frá utanríkismálanefnd.

    Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund Bryndísi Kjartansdóttur frá utanríkisráðuneyti og Kjartan Ingvarsson frá umhverfis- og auðlindaráðuneyti.
Með tillögunni er leitað heimildar Alþingis til að staðfesta ákvörðun sameiginlegu EES- nefndarinnar nr. 230/2015 um breytingu á XX. viðauka (Umhverfi) við EES-samninginn frá 2. maí 1992, og fella inn í samninginn reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 660/2014 frá 15. maí 2014 um breytingu á reglugerð (EB) nr. 1013/2006 um tilflutning úrgangs og reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 1234/2014 frá 18. nóvember 2014 um breytingu á III. viðauka B og V. og VIII. viðauka við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1013/2006 um tilflutning úrgangs.
    Reglugerð nr. 660/2014 er ætlað að bæta framfylgni og eftirlit með flutningi úrgangs og koma í veg fyrir ólöglegan flutning á úrgangi milli ríkja. Ekki er um að ræða ríkari kröfur eða kostnaðarauka fyrir þá sem starfa við að flytja úrgang milli ríkja, en reglur er varða eftirlit eru skýrari og auknar kröfur gerðar til eftirlitsaðila og m.a. er í reglugerðinni nú gerðar kröfur um virkt eftirlit, eftirlitsferðir og skoðanir sem ekki er að finna í fyrri reglugerð og gildandi lögum. Reglugerðin kveður einnig á um að komið skuli á laggirnar eftirlitsáætlun sem byggist á áhættumati og að það mat skuli byggt á greiningum lögregluyfirvalda og tollyfirvalda ef þær liggja fyrir. Eftirlitsáætlun skal beinast að fyrirtækjum, söfnunaraðilum og flutningsaðilum og skal innihalda markmið og forgangsatriði, eftirlitssvæði, upplýsingar um áætlað eftirlit, verkaskiptingu stofnana og samvinnu, upplýsingar um þjálfun eftirlitsaðila og upplýsingar um mannaforráð og fjármögnun eftirlits. Áætlunina skal endurskoða á þriggja ára fresti í ljósi reynslu en árlega skal skila skýrslu um eftirlitið til Eftirlitsstofnunar EFTA.
    Innleiðing reglugerðanna hér á landi kallar á breytingar á lögum nr. 55/2003, um meðhöndlun úrgangs. Í athugasemdum með tillögunni kemur fram að gert sé ráð fyrir því að umhverfis- og auðlindaráðherra leggi fram frumvarp til breytinga á framangreindum lögum á yfirstandandi þingi. Nefndin bendir á að samkvæmt reglugerðinni eiga nýjar eftirlitsáætlanir að taka gildi í síðasta lagi 1. janúar 2017 og því ætti að hraða frumvarpsvinnu eins og kostur er.
    Nefndin leggur til að málið verði samþykkt.
    Vilhjálmur Bjarnason var fjarverandi við afgreiðslu málsins. Össur Skarphéðinsson og Óttarr Proppé voru einnig fjarverandi en rita undir álit þetta samkvæmt heimild í 4. mgr. 18. gr. starfsreglna fyrir fastanefndir Alþingis.

Alþingi, 19. maí 2016.

Hanna Birna Kristjánsdóttir,
form., frsm.
Karl Garðarsson. Frosti Sigurjónsson.
Elín Hirst. Óttarr Proppé. Silja Dögg Gunnarsdóttir.
Steinunn Þóra Árnadóttir. Össur Skarphéðinsson.