Ferill 789. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


145. löggjafarþing 2015–2016.
Þingskjal 1459  —  789. mál.
Nr. 38/145.


Þingsályktun

um áætlun um meðferð og ráðstöfun aflamagns sem dregið er frá heildarafla skv. 5. mgr. 8. gr. laga um stjórn fiskveiða, nr. 116/2006.


     Alþingi ályktar, með vísan til 5. mgr. 8. gr. laga nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða, að því aflamagni sem dregið er frá heildarafla í hverri tegund skv. 3. mgr. 8. gr. laganna skuli varið til að mæta áföllum skv. 1. tölul. 1. mgr. 10. gr., til stuðnings byggðarlögum skv. 2. tölul. 1. mgr. 10. gr., til línuívilnunar skv. 8. mgr. 11. gr., til strandveiða skv. 6. gr. a, til veiða sem eru taldar í 6. gr. og til annarra tímabundinna ráðstafana samkvæmt lögunum með þeim hætti sem hér segir:
     1.      Allt að 9.000 tonnum til strandveiða.
     2.      Allt að 2.000 tonnum til rækju- og skelbóta.
     3.      Allt að 6.500 tonnum til stuðnings byggðarlögum.
     4.      Allt að 5.700 tonnum til aflamarks Byggðastofnunar.
     5.      Allt að 5.700 tonnum til línuívilnunar.
     6.      Allt að 300 tonnum til frístundaveiða.
     7.      Allt að 125 tonnum til áframeldis á þorski.

Samþykkt á Alþingi 2. júní 2016.