Ferill 185. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


145. löggjafarþing 2015–2016.
Þingskjal 338  —  185. mál.

Síðari umræða.


Nefndarálit


um tillögu til þingsályktunar um staðfestingu ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 28/2015 um breytingu á XIII. viðauka (Flutningastarfsemi) við EES-samninginn.

Frá utanríkismálanefnd.


    Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund Bryndísi Kjartansdóttur frá utanríkisráðuneyti og Rúnar Guðjónsson frá innanríkisráðuneyti.
    Með tillögunni er leitað heimildar Alþingis til að staðfesta ákvörðun sameiginlegu EES- nefndarinnar nr. 28/2015, frá 25. febrúar 2015, um breytingu á XIII. viðauka (Flutningastarfsemi) við EES-samninginn frá 2. maí 1992, og til að fella inn í samninginn reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 452/2014 frá 29. apríl 2014 um tæknilegar kröfur og stjórnsýslumeðferð er varða flugrekstur flugrekenda frá þriðja landi samkvæmt reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 216/2008. Sex mánaða frestur samkvæmt EES-samningnum til að aflétta stjórnskipulegum fyrirvara var veittur til 25. ágúst 2015. Framsetning tillögunnar telst að mati nefndarinnar í samræmi við 4. gr. reglna um þinglega meðferð EES- mála.
    Reglugerð (ESB) nr. 452/2014 er ætlað að stuðla að bættri stjórnsýslu og auknu flugöryggi. Með gerðinni er umsóknarferli fyrir flugrekendur frá þriðja landi einfaldað og gert skilvirkara. Þá er Flugöryggisstofnun Evrópu (EASA) gert að sjá um að votta þá flugrekendur sem óska eftir að þjónusta flug innan EES-svæðisins út frá flugöryggislegum forsendum. Sú afgreiðsla verður miðlæg fyrir EES-svæðið en áður þurftu flugmálayfirvöld í hverju ríki fyrir sig að leggja sjálfstætt mat á flugöryggi viðkomandi. Ríkin geta eftir sem áður hafnað slíkri beiðni en ef Flugöryggisstofnunin synjar umsóknaraðila um leyfi til flugs geta ríkin ekki gengið gegn því og heimilað flug innan svæðisins. Breytingin er í sjálfu sér ekki eðlisbreyting heldur er verið að auka skilvirkni og einfalda vinnu stjórnvalda.
    Þá inniheldur reglugerð (ESB) nr. 452/2014 ítarlegar reglur um flugrekendur frá þriðja landi sem starfrækja loftför sem skráð eru í þriðja landi eða í aðildarríki sem hefur falið þriðja ríki lögbundið öryggiseftirlit og er notað af flugrekanda í flutningaflugi frá þriðja landi til Bandalagsins, innan þess eða frá því.
    Reglugerð (ESB) nr. 452/2014 er nánari útfærsla á reglugerð (EB) nr. 216/2008 um sameiginlegar reglur um almenningsflug og um stofnun Flugöryggisstofnunar Evrópu sem mælir fyrir um reglur sem gilda um rekstraraðila í þriðja landi sem stunda flutningaflug innan þess svæðis eða út fyrir það svæði sem samningurinn um alþjóðaflugmál frá 1944 (Chicago- samningurinn) gildir um.
    Þegar hafa verið gerðar breytingar á lögum nr. 60/1998, um loftferðir, sem skapa lagastoð fyrir innleiðingu reglugerðarinnar með stjórnvaldsfyrirmælum. Bætt var við ákvæði sem heimilar ráðherra að setja reglugerðir til að innleiða EES-gerðir sem varða verkefni á sviði Flugöryggisstofnunar Evrópu (EASA), sem rúmast innan reglugerðar um stofnun EASA, og sem teknar hafa verið upp í EES-samninginn. Innleiðing reglugerðarinnar kallar því ekki á lagabreytingar. Gert er ráð fyrir því að innleiðing gerðarinnar hafi jákvæð áhrif á stjórnsýslu og stuðli að auknu flugöryggi.
    Nefndin leggur til að tillagan verði samþykkt.
    Elín Hirst, Óttarr Proppé og Össur Skarphéðinsson voru fjarverandi við afgreiðslu málsins.

Alþingi, 22. október 2015.

Hanna Birna Kristjánsdóttir,
form.
Karl Garðarsson,
frsm.
Vilhjálmur Bjarnason.
Silja Dögg Gunnarsdóttir. Frosti Sigurjónsson. Björn Valur Gíslason.