Alþingiskosningar 1919

Alþingi samþykkti frumvarp til stjórnarskrár konungsríkisins Íslands á 31. löggjafarþingi árið 1919. Var þing rofið í lok september það ár og alþingiskosningar fóru fram 15. nóvember. Frumvarp að hinni nýju stjórnarskrá var lagt fram á aukaþingi árið 1920, samþykkt í lok febrúar og stjórnarskráin tók gildi 18. maí 1920.

Enn var flokkakerfi ekki fullmótað og talsverður hluti frambjóðenda var utan flokka en fjórir stjórnmálaflokkar voru í boði: Alþýðuflokkur, Framsóknarflokkur, Heimastjórnarflokkur og Sjálfstæðisflokkur.

Um kosningarnar
Kjördagur
15. nóvember 1919
Mannfjöldi 91.897
Kjósendur á kjörskrá 43.932
Hlutfall kosningarbærra af heildarmannfjölda 45,2%
Greidd atkvæði 14.463
Kosningaþátttaka 58,7%
Hlutfall kjósenda af heildarmannfjölda 15,7%
Kosningaþátttaka karla 74,1%
Kosningaþátttaka kvenna 39,1%
Kjördæmakjörnir þingmenn 34
Landskjörnir þingmenn 6
Heildarfjöldi þingmanna 40
Kosningaúrslit – kjördæmakjörnir þingmenn
Gild atkvæði 14.035
Heimastjórnarflokkur 29,4% 9 þingmenn
Framsóknarflokkur   13,3%  6 þingmenn
Sjálfstæðisflokkur 11,1% 7 þingmenn
Alþýðuflokkur 6,8%
Utan flokka    39,4%   12 þingmenn
Kjördæmi og þingmenn 1919
Reykjavík 2
Gullbringu- og Kjósarsýsla 2
Árnessýsla 2
Rangárvallasýsla 2
Vestmannaeyjar 1
Vestur-Skaftafellssýsla 1
Austur-Skaftafellssýsla 1
Suður-Múlasýsla 2
Seyðisfjarðarkaupstaður 1
Norður-Múlasýsla 2
Norður-Þingeyjarsýsla 1
Suður-Þingeyjarsýsla 1
Eyjafjarðarsýsla 2
Akureyri 1
Skagafjarðarsýsla 2
Húnavatnssýsla 2
Strandasýsla 1
Norður-Ísafjarðarsýsla 1
Ísafjarðarkaupstaður 1
Vestur-Ísafjarðarsýsla 1
Barðastrandarsýsla 1
Dalasýsla 1
Snæfellsnes- og Hnappadalssýsla 1
Mýrasýsla 1
Borgarfjarðarsýsla 1