Alþingiskosningar 1949
Þing var rofið 12. ágúst 1949 og alþingiskosningar fóru fram 23. og 24. október það ár. Í þéttbýli var aðeins einn kjördagur, 23. október, en í dreifbýli var heimilt að halda einnig kosningar 24. október.
Fjórir stjórnmálaflokkar lögðu fram framboðslista við kosningarnar, Alþýðuflokkur, Framsóknarflokkur, Sjálfstæðisflokkur og Sósíalistaflokkur, og buðu fram í öllum kjördæmum nema Alþýðuflokkurinn hafði ekki frambjóðendur í Austur-Skaftafellssýslu.
Um kosningarnar | ||||
Kjördagur | 23.–24. október 1949 | |||
Mannfjöldi | 138.502 | |||
Kjósendur á kjörskrá | 82.481 | |||
Hlutfall kosningarbærra af heildarmannfjölda | 58,7% | |||
Greidd atkvæði | 73.432 | |||
Kosningaþátttaka | 89,0% | |||
Hlutfall kjósenda af heildarmannfjölda | 53,0% | |||
Kosningaþátttaka karla | 92,3% | |||
Kosningaþátttaka kvenna | 85,9% | |||
Kjördæmakjörnir þingmenn | 41 | |||
Jöfnunarþingmenn | 11 | |||
Heildarfjöldi þingmanna | 52 | |||
Kosningaúrslit | ||||
Gild atkvæði | 72.219 | |||
Sjálfstæðisflokkur | 39,5% | 19 þingmenn | ||
Framsóknarflokkur | 24,5% | 17 þingmenn | ||
Sósíalistaflokkur | 19,5% | 9 þingmenn | ||
Alþýðuflokkur | 16,5% | 7 þingmenn | ||
Jöfnunarþingmenn | ||||
Sósíalistaflokkur | 6 | |||
Alþýðuflokkur | 3 | |||
Sjálfstæðisflokkur | 2 |
Kjördæmi og þingmenn 1949 | |
Einmenningskjördæmi | |
Borgarfjarðarsýsla | 1 |
Mýrasýsla | 1 |
Snæfellsnes- og Hnappadalssýsla | 1 |
Dalasýsla | 1 |
Barðastrandarsýsla | 1 |
Vestur-Ísafjarðarsýsla | 1 |
Ísafjarðarkaupstaður | 1 |
Norður-Ísafjarðarsýsla | 1 |
Strandasýsla | 1 |
Vestur-Húnavatnssýsla | 1 |
Austur-Húnavatnssýsla | 1 |
Siglufjarðarkaupstaður | 1 |
Akureyrarkaupstaður | 1 |
Suður-Þingeyjarsýsla | 1 |
Norður-Þingeyjarsýsla | 1 |
Seyðisfjarðarkaupstaður | 1 |
Austur-Skaftafellssýsla | 1 |
Vestur-Skaftafellssýsla | 1 |
Vestmannaeyjakaupstaður | 1 |
Hafnarfjarðarkaupstaður | 1 |
Gullbringu- og Kjósarsýsla | 1 |
Tvímenningskjördæmi – hlutfallskosning | |
Skagafjarðarsýsla | 2 |
Eyjafjarðarsýsla og Siglufjarðarkaupstaður | 2 |
Norður-Múlasýsla | 2 |
Suður-Múlasýsla og Neskaupstaður | 2 |
Rangárvallasýsla | 2 |
Árnessýsla | 2 |
Kjördæmi með hlutfallskosningu | |
Reykjavík | 8 |