Alþingiskosningar 1942 – seinni kosningar ársins

Þing var rofið 9. september 1942 og fóru alþingiskosningar fram 18. og 19. október. Kosið var samkvæmt nýjum kosningalögum, nr. 80/1942, og breyttri stjórnarskrá. Þær breytingar urðu á kjördæmaskipan að einu einmenningskjördæmi, Siglufjarðarkaupstað, var bætt við og þingmönnum Reykjavíkur fjölgað um tvo og voru þeir átta eftir breytinguna. Þingmönnum á Alþingi fjölgaði um þrjá, urðu 52.

Framkvæmd kosninga breyttist að því leyti að tekin var upp hlutfallskosning í tvímenningskjördæmunum.

Eftir breytinguna voru tvímenningskjördæmi sex en einmenningskjördæmi 21. Í Reykjavíkurkjördæmi voru kjörnir átta þingmenn og jöfnunarþingmenn voru 11.

Fimm stjórnmálasamtök buðu fram í þessum kosningum: Alþýðuflokkur, Framsóknarflokkur, Sjálfstæðisflokkur, Sósíalistaflokkur og Þjóðveldismenn. Sjálfstæðisflokkur, Framsóknarflokkur og Sósíalistaflokkur buðu fram í öllum kjördæmum landsins. Alþýðuflokkurinn bauð ekki fram í sjö kjördæmum og Þjóðveldismenn buðu aðeins fram í Reykjavíkurkjördæmi.

Um kosningarnar
Kjördagur 18.–19. október 1942
Mannfjöldi 122.385
Kjósendur á kjörskrá 73.560
Hlutfall kosningarbærra af heildarmannfjölda 59,7%
Greidd atkvæði 60.576
Kosningaþátttaka 82,3%
Hlutfall kjósenda af heildarmannfjölda 49,5%
Kosningaþátttaka karla 87,6%
Kosningaþátttaka kvenna 77,3%
Kjördæmakjörnir þingmenn 41
Jöfnunarþingmenn 11
Heildarfjöldi þingmanna 52
Kosningaúrslit
Gild atkvæði 59.668
Sjálfstæðisflokkur   38,5%  20 þingmenn
Framsóknarflokkur   26,6%  15 þingmenn
Sósíalistaflokkur   18,5%  10 þingmenn
Alþýðuflokkur 14,2% 7 þingmenn
Þjóðveldismenn 2,2%
Jöfnunarþingmenn
Sósíalistaflokkur 6
Alþýðuflokkur 3
Sjálfstæðisflokkur 2
Kjördæmi og þingmenn 18.–19. október 1942
Einmenningskjördæmi
Borgarfjarðarsýsla 1
Mýrasýsla 1
Snæfellsnes- og Hnappadalssýsla 1
Dalasýsla 1
Barðastrandarsýsla 1
Vestur-Ísafjarðarsýsla 1
Ísafjarðarkaupstaður 1
Norður-Ísafjarðarsýsla 1
Strandasýsla 1
Vestur-Húnavatnssýsla 1
Austur-Húnavatnssýsla 1
Siglufjarðarkaupstaður 1
Akureyrarkaupstaður 1
Suður-Þingeyjarsýsla 1
Norður-Þingeyjarsýsla 1
Seyðisfjarðarkaupstaður 1
Austur-Skaftafellssýsla 1
Vestur-Skaftafellssýsla 1
Vestmannaeyjakaupstaður 1
Hafnarfjarðarkaupstaður 1
Gullbringu- og Kjósarsýsla 1
Tvímenningskjördæmi – hlutfallskosning
Skagafjarðarsýsla 2
Eyjafjarðarsýsla og Siglufjarðarkaupstaður 2
Norður-Múlasýsla 2
Suður-Múlasýsla og Neskaupstaður 2
Rangárvallasýsla 2
Árnessýsla 2
Kjördæmi með hlutfallskosningu
Reykjavík 8